Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 54
48
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Janúar.
veit nú, aö ég vil engu sleppa af trú minni. Hún má ekki við
því að minka. En sjálfsprófunar er mér áreiðanlega þörf.
Ég hugsa oft um þessi orð: „Þol ilt“. Þessi áminning er á
nokkurum stöðum í síðara Tímóteusarbréfinu. Þetta er eftir-
tektarverður boðháttur. Gleymum því ekki, að margir verða nú
að hlusta eftir þessum boðhætti og hlýða honum. Þó að stríð-
inu væri lokið, gætu margar deilur risið meðal þjóðanna, og
því skal ekki gleymt, að á hinum svokölluðu friðarfímum hefir
trúin oft mætt andúð og litilsvirðingu.
Ég ætla mér ekki að tlæma um sekt eða sakleysi þjóðanna.
En þegar ég horfi á heiminn flakandi í sárum og bið fyrir
þeim, sem við hinar sárustu hörmungar búa, þá bið ég einnig
fyrir minni eigin þjóð, fyrir kirkjú vorri og þjónum hennar.
Alvarlegar fregnir berast mér að eyrum. Ég vil ekki láta mér
nægja að tala um það, sem gerist annars staðar, en ég vil
spyrja sjálfan mig, livort ég sé i trúnni. Þegar ég geng undir
þetta próf, vil ég leita hjálpar hjá drotni, sem biður fyrir mér,
að trú mín þrjóti ekki. Með því einu móti getur starf mitt í
Guðs riki orðið einhverjum til lijálpar.
Bj. .1.
Aðalfundur Prestafélags íslands.
Tilhögun.
Aðalfundur Prestafélags íslands 1941 var liald-
inn í 1. kenslustofu Háskóla íslands. Hófst
fundurinn föstudaginn 10. október kl. 10 með guðsþjónustu í
Háskólakapellunni. Stýrði henni séra Friðrik J. Rafnar vígslu-
biskup, og flutti hann við það tækifæri timabæra og vekjandi
prédikun út frá orðunum í Lúk. 21, 13: ,,Og þetta mun verða
yður tækifæri til vitnisburðar“.
Fundurinn stóð dagana 10. og 11. október, en sunnudaginn
12. okt. hófst hinn almenni kirkjufundur. í fundarlok bað for-
maður bænar út frá Jóli. 15, 1—16, og síðan gengu fundarmenn
til Háskólakapellunnar og voru þar til allaris hjá séra Friðriki
Hallgrímssyni dómprófasti.
Fundinn sóttu: Biskup íslands, vígslubiskupar
báðir, kennarar guðfræðideildar þrír, 29 prest-
ar og prófastar, 5 pastores emeriti og nokkurir guðfræðistúdentar.
Formaður, prófessor Ásmundur Guðmundsson,
flutti þá skýrslu um félagsárið, fjármál Presta-
telagsins og útgáfumál, og skýrði frá athöfnum félagsstjórnar
og afskiptum af launamálum presta og öðrum þeim málum, er
Fundarsókn.
Skýrsla stjórnar.