Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 18
Janúar.
w
O, Jesús Kristur, herra hár.
(Sálmurinn er tileinkaður Guðfræðideild Háskólans).
(), Jesús Kristur, herra hár,
að himni þínum veg þú greiðir.
í djúpum kærleik öld og ár
þinn opna faðm þú mót oss breiðir.
Og þú ert Ijós á þröngum vegi,
er þoka heimsins villir sýn,
vor hjálp og tíkn að hinsta degi,
er heim þú bendir oss til þín
og bregzt oss eigi.
Ó, Jesús Kristur, herra hár,
þitt heilagt sannleiksorð þú veitir.
Það mildar beiskju, sorg og sár,
og sælu í þínu ríki heitir.
Þótt berist gnýir branda’ og vigra,
og blóðið drjúpi’ á jarðarsvörð,
þitt kærleiksboðorð samt mun sign
og sárin gróa lxér á jörð
— það samt mun sigra.
Ö, Jesús Kristur, heimi hlíf
og huggun sönn á banadegi.
þú sýndir, er þú lézt þitt líf,
að lífi dauðinn grandar eigi.
í hjarta voru tjós þitt lifir
og logar hrundar borgir við.
Þú voru lífi vakir yfir
og veitir hreldum sálum frið.
— Þú í oss lifir.