Kirkjuritið - 01.01.1942, Blaðsíða 61
Kirkjuritið.
Fréttir.
55
Embættispróf í guðfræði.
Jóhannes Pálmason frá Akureyri lauk 31. jan. embættisprófi
i guðfræði með I. einkunn, 105 st.
Trúmálafundur.
Að aflokinni messu séra Þorgríms Sigurðssonar að Grenjaðar-
stað, sunnudaginn 16. nóvember 1941, var almennur trúmála-
fundur fyrir Suður-Þingeyjarsýslu haldinn i Einarsstaðakirkju.
Jón H. Þorbergsson setti fundinn fyrir hönd nefndar, kosinnar
á- héraðsfundi til að standa fyrir þessu fundarhaldi. Prófastur
séra Friðrik Friðriksson tilnefndi Jón H. Þorbergsson sem
fundarstjóra og þá Aðalstein Jónsson og Tryggva Sigtryggsson
sem fundarritara. Á fundinum gerðist þetta:
Baldvin Baldvinsson bóndi á Ófeigsstöðum flutti erindi: Nú-
vcrandi ástand islenzku kirkjunnar. Taldi ræðumaður, að deyfðin
í kirkjulifinu væri óþolandi og hættuleg menningu þjóðarinnar,
°g deildi nokkuð á prestana fyrir atkvæðaleysi í söfnuðunum
°g taldi, að til prests þýddi ekki að velja neina meðalmenn,
eins og nú væri komið i málum kirkjunnar í söfnuðunum. Stað-
•’eyndin væri, að kirkjurnar stæðu tómar, og vildi hann lieldur
fáar messur og góðar en oft ætti að messa með engu fylgi.
Vmsir voru fleiri ræðumenn, og var mikill áhugi og fjör i um-
•’æðunum. Miðuðu þær og ályktanir fundarins að því að efla
sem mest kristnilif og kirkju í prófastsdæminu, og má mikils
góðs vænta af þessum fundarhöldum Þingeyinga, sem Jón H.
borbergsson, óðalsbóndi á Laxamýri, mun vera frumkvöðull að.
()skar Ivirkjuritið þess, að þetta starf megi verða mörgum til
blessunar á ókornnum árum.
Starf söngmálastjóra.
Auk þess sem Kirkjuritið hefir áður getið um, þá starfaði
söngmálastjóri með hinum nýja kirkjusöngflokk Hallgrimssafn-
aðar hér i Reykjavík rúmlega nóvembermánuð. — Síðan fór
söngmálastjóri austur að Breiðabólsstað í Fljótshlíð og starfaði
bar nokkuð af desember-mánuði með söngflokkunr frá tveim
söfnuðum — Breiðabólsstaðar- og Hlíðarendasóknum — alls 27
nianns og mætti það til æfinga alt að Breiðabólsstað á hverjum
einasta degi og lét livorki slæmt veður eða skammdegi aftra sér,
°nda voru æfðir bæði jóla og nýárs hátíðasöngvar próf. Bjarna
borsteinssonar og kórverk fyrir jóla og nýárs messurnar og
einnig hátíðasálmarnir.