Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 13

Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 13
JÓLIN — KÆRLEIKSHÁTÍÐ 263 og blessun til allra samferðamannanna. Hver maður er eins og viðkvæmt blóm, við hjartayl og kærleika dafnar hann, eins og blómið, er nýtur sólarinnar. Nærgætnin og tryggðin við hann gerir hann betri og lífsviðhorf hans bjartara og eyðir að sama skapi því vonda hjá honum og skapar í honum jarðveg og gróður fyrir Guðs anda og kærleika. Hver jólahátíð er því nýtt og dýrmætt tæki- færi, sem Guð gefur þér af kærleika sínum til þín, til þess að þú og ég verðum hans þjónar og berum Jesú Kristi vitni, sem hans lærisveinar í því að bera kærleika, birtu og fögnuð til meðbræðra vorra og systra. Og í sann- leika er hverri jólahátíð bezt þjónað, ekki með predik- unum og helgiathöfnum, þótt hvorttveggja þetta sé dýr- mætt og sjálfsagt, heldur með því hugarfari, sem ber vitnisburð í verki, í starfinu sjálfu, meðal bræðra og systra, eins og Jesús sýndi oss á jarðvistarárum sínum, með því að hjálpa, hugga og gleðja aðra, fylgjast með þeim í gleði og sorg og flytja öðrum ávallt jólabirtu með blysför kærleiksverka og góðrar breytni. Guð gefi oss öllum náð til þess og gleðileg jól í Jesú nafni. Jón Thorarensen.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.