Kirkjuritið - 01.12.1950, Blaðsíða 15
Jesús hefur starf sitt
Upphaf starfs Jesú hefir verið eitthvert ljúfasta um-
hugsunarefni kristnum mönnum. Þeir hafa þráð að vita
sem gleggst, hvemig það varð, og sótt öld af öld svölun
í þá lind, er þar spratt fram.
Lúkas guðspjallamaður leggur hina mestu áherzlu á
það að tiltaka nákvæmlega ártalið, þegar ,,orð Guðs kom
til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni", nákvæmar en
allt annað tímatal í guðspjallinu. Hann ákvarðar það á
sex vegu og verður það árið 28 e. Kr. eftir tímareikningi
vorum. Það er auðsætt, hvað veldur þessari nákvæmni.
Ekki starf Jóhannesar skírcira í sjálfu sér, þótt það sé
mikið og merkilegt. Mynd Jóhannesar bregður aðeins fyrir
á stöku stað í guðspjallinu. Nei, Lúkas er að ákvarða,
hvenær allsherjarstarf Jesú hefst. Það tekur við af starfi
Jóhannesar, skömmu síðar. Og um leið bregður Lúkas
birtu yfir allt tímatal, sem mestu varðar, í ævi Jesú, því
að hann segir, að Jesú hafi verið hérumbil þrítugur að
aldri, þegar hann byrjaði. Hversu lengi allsherjarstarfið
hafi staðið, segir hann ekki, né neinn hinna guðspjalla-
mannanna. Mun það valda, að þeir hafi þá talið það al-
kunna. En frásögn þeirra allra bendir skýrt til þess, að
starfið hafi fremur staðið skemmri en lengri tíma, örfá
ár í hæsta lagi.
Samstofna guðspjöllin skýra svo frá, að Jesús hefji
starf sitt norður í Galíleu. Meðal annars orðar Lúkas
svo kæm æðstuprestanna gegn Jesú: Hann æsir upp lýð-