Kirkjuritið - 01.12.1950, Qupperneq 16
266
KIRKJURITIÐ
inn, með því að hann kennir um alla Júdeu, allt frá
Galíleu, þar sem hann byrjaði, og hingað (23, 5). Og
Postulasagan tekur, eins og vænta má, í sama streng,
þar sem Lúkas er einnig höfundur hennar. Hún tilfærir
þessi orð í einni af ræðum Símonar Péturs: Þetta erindi
þekkið þér, sem flutt var um alla Júdeu, en hófst í Galíleu
eftir skírnina, sem Jóhannes prédikaði (Post. 10, 37).
Sumir álykta að sönnu út frá Jóhannesarguðspjalli, að
Jesús starfi um hríð í Júdeu áður en hann tekur til að
kenna í Galíleu. En höfundur þess guðspjalls hirðir lítt
um tímaröð viðburðanna í lífi Jesú. Hann er ekki að setja
saman ævisögu. Hann er að skýra frá hinum guðlega
Logos, orðinu, sem var í upphafi hjá Guði og varð hold
og bjó með oss. Eilífðin sjálf hvelfist yfir. Og þá varðar
engu, hvort þessi atburðurinn eða hinn er talinn gerast
fyrr eða síðar. Þess vegna verður það mjög hæpið frá
sagnfræðilegu sjónarmiði að álykta, að þetta starf Jesú
í Júdeu gangi á undan Galíleustarfinu. Auk þess er það
sýnt, að t. d. atburðir eins og musterishreinsunin gerist
ekki í upphafi starfs Jesú, eins og Jóhannesarguðspjall
virðist telja, heldur undir lok þess, svo sem Samstofna
guðspjöllin segja frá. Enda eru orð Jesú við það tækifæri
gefin honum að sök við réttarhöldin fyrir öldungaráðinu.
Eins er það líklegra, að Nikódemus ráðherra láti nátt-
myrkrið skýla för sinni til Jesú, þegar liðið er á starf
hans og andstaðan gegn honum hefir magnazt. Jóhannes-
arguðspjall er einnig sammála Samstofna guðspjöllunum
um það, að Jesús gjöri fyrsta tákn sitt í Galíleu. Að vísu
er það talið vera í Kana en ekki í Kapernaum og hafi
Jesús breytt þar vatni í vín í brúðkaupsveizlu. En sú sögn
mun vera táknræn, runnin frá orðum Jesú um það, að
kenning hans sé „nýtt vín“ (Mark. 2, 22, Lúk. 5, 38, Matt.
9, 17), hann sjálfur brúðgumi (Mark. 2, 19, Lúk. 5, 34,
Matt. 9,15) og guðsríkið brúðkaupsveizla (Matt. 22, 2 nn);
andleg siðaboð hans breyti vatni hreinsunarfyrirmæla lög-
málsins í vín.