Kirkjuritið - 01.12.1950, Qupperneq 17
JESÚS HEFUR STARF SITT
267
Hvorki Markúsarguðspjall né Matteusar skýra frá því,
hve langur tími líður frá skírn Jesú og freistingu, unz
hann hefur guðríkisstarf sitt. En þau miða bæði við það,
að Jóhannes skírari er framseldur. Þá fyrst er sól fyrir-
rennarans er gengin til viðar, kemur Jesús fram í Galíleu
með boðskap sinn. Lúkas aftur á móti kveður nánar á:
„Og er djöfullinn hafði lokið allri freistingu, veik hann
frá honum um hríð. Og Jesús sneri í krafti andans aftur
til Galíleu, og orðrómur um hann barst út um öll héruð-
in í grennd. Og hann kenndi í samkunduhúsum þeirra.“
Með öðrum orðum Jesús leggur þegar að loknu freistinga-
tímabilinu norður til Galíleu og hefur fagnaðarboðskap
sinn. Er engin ástæða til að draga í efa þessa frásögu
Lúkasar.
Heimahagarnir í Nazaret verða þó ekki miðstöð starfa
Jesú, heldur borgin Kapernaum niðri við Genesaretvatnið.
Verður hún Jesú „eigin borg“, þ. e. hann öðlast þar borg-
ararétt að ári liðnu (sbr. Matt. 9, 1). Hvað því veldur, að
Jesús skilur þannig við Nazaret, segir ekki. En fyrst og
fremst hefir það valdið, að jarðvegurinn hefir verið betri
í Kapernaum til þess að veita guðríkisboðskapnum við-
töku heldur en í Nazaret, því að „eigi er spámaður óvirtur
nema í átthögum sé“ (Mark. 6, 4). Einnig kann sú breyt-
ing að hafa orðið fyrir móður Jesú og bræðrum, er hann
hætti að vera fyrirvinna heimilisins með smíðum sínum,
að þau flyttust frá Nazaret til Kapernaum og leituðu sér
þar atvinnu. Á það bendir frásagan um, að móðir Jesú
og bræður hans hafi ætlað að ná honum til sín í Kaper-
naum, er hann mátti ekki matazt fyrir mannfjöldanum
(Mark. 3, 20 nn), og ummæli Nazaretbúa, er þeir taka
það sérstaklega fram um systur Jesú en hvorki móður
né bræður, að þær eigi heima meðal þeirra í Nazaret
(Mark. 6,3).
En þótt þessir nánustu vandamenn Jesú hafi átt heima
í Kapernaum, er engan veginn víst, að Jesús hafi dvalizt
þar með þeim. Þeir skilja hvorki enn boðskap hans né