Kirkjuritið - 01.12.1950, Side 18
268
KIRKJURITIÐ
trúa á hann, að minnsta kosti segir það berum orðum
um bræður hans (sbr. Jóh. 7, 5). Þeir telja hann jafnvel
ekki með sjálfum sér (Mark. 3, 21). Er það líklegt, að
Jesús eigi við reynslu sjálfs síns, er hann segir, að eigi
sé spámaður óvirtur nema meðal ættingja sinna og á
heimili sínu.
Borgin Kapernaum, þar sem Jesú hefur starf sitt, er
þá allmiklu stærri en Nazaret. Munu íbúar ekki færri en
15000. Stendur hún norðvestanvert við Genesaret, um 6
km. veg frá ósum Jórdanar í vatnið. Fyrir sunnan borg-
ina fellur á í vatnið, Kapemaumlindin. Og undan kalk-
steinum streymir fram vatn, hlýtt og heilnæmt. Borgin
er blómleg viðskiptaborg. Vestan með henni, um 3 km.
frá vatninu, liggur þjóðvegurinn norður, og siglingar mikl-
ar eru um vatnið. Vestan við það standa borgirnar svo
þétt, að húsaröðin er óslitin að kalla.
Umhverfið er tilkomumikið, þar sem Jesús flytur fyrst
guðsríkis boðskap sinn. Vér getum séð í anda fagra mynd
og þrungna lífi.
Úti á vatninu stafar á fjölda af fannhvítum seglum.
Vöruflutningaskip sigla suður að vatnsenda með fiskfarm,
önnur norður í áttina til Damaskus með jarðargróða.
Bátaflotinn, sem Genesaretborgirnar gera út, er á veiðum
á bláa og bjarta vatninu fiskisæla. Kapernaumbörnin
mæna út á hafið, þar sem þau vita feður sína og bræður,
og hlakka til, þegar þeir koma heim með aflann. Niður
við höfnina er verið að ferma skip og afferma, og toll-
þjónarnir skrifa í bækur sínar og heimta inn tolla. Allt
iðar í landi af lífi og fjöri. Þar sem lifandi kornstanga-
móðan, gulhvít, gengur í bylgjum á ökrunum fyrir and-
varanum, eru menn að uppskeru. Asnar og uxar þreskja
kornið, og því er þyrlað upp frá láfunum með varpskóflu.
Vínviðurinn er sniðlaður og safnað fíkjum, döðlum og olíf-
um af aldintrjánum. Vínþröng er troðin og vínlagarþró
fyllist. Olíupressur og kvamir eru í gangi. Börn og full-
orðnir hjálpast að við vinnuna. Hvarvetna heyrist glað-