Kirkjuritið - 01.12.1950, Síða 25
Jón Arason.
Eftir MAGNÚS JÖNSSON.
Jón Arason er án efa einn svipmesti maður, sem uppi
hefir verið á Islandi. Mynd hans er í senn fjölbreytt svo
að af ber, og þó heilsteypt. Hann lifir auk þess einhverja
mestu umbyltingartíma Islandssögunnar, og er um skeið
sá möndull, sem þeir viðburðir snúast um. Um slíkan
mann þarf heila bók, og verður þó fullerfitt að gera hon-
um skil. Hér í þessu stutta erindi verður ekki um annað
að ræða en drepa niður fingri hér og þar og draga á
pappír eina og eina línu úr þessari miklu mynd.
•
Til er gömul vísa, sem margir þekkja, eignuð Jóni
biskupi Arasyni:
Ýtar buðu Grund við Grýtu,
Gnúpufell og Möðruvelli.
En ábótinn vill ekki láta
ágætt ból, nema fylgi Hólar.
Aldrei verður með vissu sagt, hvort vísan er með réttu
Jóni biskupi eignuð. En hitt er víst, að hún ber full merki
þess að vera eftir hann.
Skáhallt yfir frá Grýtu blasir við höfuðbólið Grund í
Eyjafirði og ber af öllu þar um slóðir. En nokkru framar
eru stórgarðarnir Gnúpufell og Möðruvellir, höfuðból Guð-
mundar ríka, því að líklegra er að við það sé átt en Möðru-