Kirkjuritið - 01.12.1950, Qupperneq 34
280
KIRKJURITIÐ
og harðsnúið, að óhugsandi var fyrir ögmund að beita
nokkrum kúgunum eða ofbeldi. Varð því að ganga milli
þessara stórbrotnu höfðingja. Það var rétt eins og mestu
ægitímar Sturlungaaldar væru komnir, og hefir vafalaust
mörgum verið nóg boðið.
En Jón Arason hefir verið fús til sáttanna nú, sem
endranær. Hann hafði sýnt og sannað, að ekki tjóaði að
ætla að kúga hann með ofbeldi. Nú var hann fús til
sátta og samvinnu. Enda er þess ekki getið, að þeir ætt-
ust meira illt við, biskupamir ögmundur og Jón.
•
Þegar Jón var seztur að biskupsstóli, tók hann að efla
sig og festa í sessi.
Var þá fyrst að koma fjármálunum í horf. Gerðar
hafa verið tilraunir til þess að meta til nútímapeninga
auðæfi Hóladómkirkju um þessar mundir og tekjur bisk-
ups. Skal ég ekki fara út í það nánar. En hér var svo
gífurlegur auður saman kominn í jarðeignum og kúgild-
um, að í nánd við Hólastað sjálfan eru ekki einu sinni
taldar jarðirnar, heldur sveitirnar heilar. (Allar jarðir í
Óslandshlíð, allar jarðir í Kolbeinsdal, allar jarðir í Hjalta-
dal, allar jarðir í Blönduhlíð.) Og tekjur biskups voru svo
miklar, að annað eins hefir ekki þekkzt hér fyrr né síðar,
þegar borið er saman við aðra um sömu mundir. Þegar
þar við bætist að Jón hefir verið hinn mesti ráðdeildar-
maður og glöggur á fjármál, eins og ráða má af ýmsu,
hefir ekki verið lengi að safnazt að honum auður, sem
nú myndi nema mörgum milljónum króna.
Annað, sem Jón Arason notar til þess að efla sig og
festa í sessi, er að koma börnum sínum í sem mestar
áhrifastöður.
Hann hafði á unga aldrei tekið saman við konu, er
hét Helga Sigurðardóttir, góðrar ættar, og að því er virð-
ist, hina mestu ágætiskonu. Þau áttu saman svo vitað
sé 6 börn, 4 syni og tvær dætur.