Kirkjuritið - 01.12.1950, Side 39

Kirkjuritið - 01.12.1950, Side 39
JÓN ARASON 283 hér heima, fara herbrestir að heyrast umhverfis Lúther. Og þeim herbrestum heldur áfram allan þann tíma, sem ég hefi hér rætt um. Ekki aðeins Lúther og fylgismenn hans, ekki aðeins kirkjan og háklerkar hennar, heldur og þjóðhöfðingjar og riddarar, bændur og borgarar, allt kemst í uppnám. Inn í þessa fullkomlega trúarlegu hreyf- ingu Lúthers blandast alls kyns skapnaður og óskapnaður í stjórnmálum og félagsmálum, svo að enginn fær full- komlega séð út yfir það eða haft þá strauma og hring- iður á sínu valdi. Um þessar mundir bárust hvorki fréttir né straumar og stefnur jafnfljótt yfir og á vorum dögum. Hingað út bárust að vísu fregnir af þessu, og einhver áhrif. En í odda skarst ekki fyrr en þessi stefna fór að berast svo um munaði til Danmerkur. Kemur hún þá fram óbeint hér á landi í því, að biskuparnir báðir, ögmundur og Jón, gleyma fullkomlega öllum fyrri væringum og binda sín á milli fastasta bræðralag hvor öðrum til stuðnings. Og svo skellur fyrsti bylurinn á við það, að Kristján m. brýzt til valda í Danmörku 1536. Gerast nú fljótt svo margir og miklir viðburðir, að ekki verða hér raktir. Hér get ég aðeins brugðið upp örsmáum skyndimyndum af Jóni Arasyni og sigrum hans og ósigrum í fangbrögð- unum við þennan nýja innrásarher: Siðaskiptin og kon- ungsvaldið danska. Ég held, að Jóni Arasyni og framkomu hans í þessum miklu málum verði bezt lýst með því að bregða upp myndum af tveim alþingum, 1540 og 1541. Kristján III. sendi kirkjuskipan sína fyrst hingað til lands án alls undirbúnings 1538, og með hana einn dæma- lausan misindismann, Kláus frá Merwitz. Kirkjuskipaninni var þá vikið frá með hægð. En Kláus og umboðsmaður hans sýndu hug sinn og það, hvað í vændum var, með því að hefjast handa næsta vor og fara að leggja undir sig klaustrin hér á landi. Fór Diðrik þá á hvítasunnudag út í Viðey, tók klaustrið og hafði í frammi ýmsa ósvinnu.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.