Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 60

Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 60
304 KIRKJURITIÐ Hann bjó sig því tafarlaust til ferðar um sumarmál og lagði af stað. Hann ferðaðist með gufuskipi niður eftir Volgu til Samara, og þaðan fór hann fótgangandi 400 rastir, þangað til hann kom í áfangastað. Þar var allt eins og frá hafði verið skýrt. Bændurnir lifðu þar kóngalífi á 10 hektörum af gjafa- landi, sem hver maður fékk, og hreppsnefndin tók honum með kostum og kynjum, og fullvissaði hann um að hann væri velkominn. Enn var honum sagt frá því, að hver, sem þangað kæmi með peninga, gæti keypt viðbótar land — eins mikið og hann lysti — beint af augum og ótakmarkað — til eilífðar. Maður gat fengið hið ágætasta land, sem hægt var að hugsa sér, fyrir 3 rúblur hektarann — og hversu stórt sem maður vildi. Þetta fékk Pakhom allt að vita, og sneri þessu næst heim- leiðis, þegar komið var haust. Hann byrjaði tafarlaust að selja, og var svo hagsæll, að losna við jörðina, öll mannvirki, áhöfn og búslóð með góðum hagnaði. Þessu næst lét hann afmá nafn sitt úr hreppsbókunum, beið vorsins og hélt til hins nýja bústaðar með fjölskyldu sína. Þau komust farsællega og í tæka tíð til ákvörðunarstaðar- ins, og Pakhom var þegar í stað skráður í manntalsbækur þessarar voldugu nýlendu (eftir að hafa vætt kverkamar á öldurmönnunum, eins og gefur að skilja, og lagt fram öll skilríki). Þessu næst mældu þeir honum og afsöluðu 50 hektör- um af landi, tíu fyrir hvert mannsbarn í fjölskyldunni — á víð og dreif í nýlendunni, og til viðbótar sameiginlegt beiti- land. Pakhom byggði sér heimili og birgði sig að nauðsynj- um, enda gjafalandið eitt, út af fyrir sig, tveim sinnum eins stórt og hann hafði áður haft á gamla staðnum. Það var einnig kornfrjótt land. Að öllu samanlögðu leið honum þarna tíu sinnum betur en þar, sem hann hafði áður verið, því að hann hafði til umráða bæði ræktunarland og beitiland, og hið síðar talda svo nægilegt, að hafa mátti þar ávallt svo margt kvikfénaðar, sem hann taldi nauðsyn og kærði sig um. Á meðan hann var að búa um sig og byggja húsin fannst honum í fyrstu allt vera með stökustu ágætum. En seinna, þegar hann hafði dvalið þarna um hríð, tók honum að finnast þröngt um sig. Hann vildi rækta hvítt tyrkneskt hveiti, eins og ýmsir aðrir gerðu þarna, en það var varla ein einasta af

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.