Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 63

Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 63
LANDRÝMIÐ OG MAÐURINN 307 hann testauka, svartadauða og aðra muni, sem hann ætlaði að gefa, eins og kaupmaðurinn hafði ráðlagt honum. Óku þeir svo, eins og leið lá, 500 rastir, og komu á sjöunda degi að tjaldstað Baskira. Allt reyndist þetta eins og kaupmaður hafði frá því skýrt. Fólkið bjó þarna í tjaldvögnum, sem stóðu í röðum með fram fljótinu, sem rann um heiðarsléttuna. Þetta fólk plægði hvorki jörðina né borðaði kommat, en reikaði um heiðina með fjárhjarðir og urmul af Kósakka stóði. Voru folöldin tjóðruð aftan í vögnunum og týjur þeirra reknar til þeirra tvisvar á dag til að gefa þeim að sjúga mjólkina. Aðalfæða fólksins var merarmjólk og konurnar bjuggu til úr henni drykk, sem nefndur var kumiss, var hann svo strokk- aður og gerður úr honum ostur. í raun og veru var kumiss, eða te, eini drykkurinn, sem Baskirar þekktu, og eina kjarn- fæða þeirra kjöt, og eina skemmtunin pípnaleikur. En allt um það voru þeir allir sællegir og glaðlegir útlits og héldu heilagt allan árshringinn út. Þeir voru sorglega illa uppfræddir í allri menntun, en ástúðlegir og aðlaðandi engu að síður. Undir eins og þeir komu auga á Pakhom, komu þeir þjót- andi út úr vögnum sínum og umkringdu gestinn. Fenginn var túlkur, og Pakhom sagði þeim, að hann væri kominn til að kaupa land. Þeir urðu himinlifandi á stundinni og um- föðmuðu Pakhom ákaflega og báru hann á gullstól að bezt búna vagninum. Þar bjuggu þeir honum hægindi úr haugum af brekánum og lögðu þar á ofan mjúkar sessur, og leiddu hann þar til öndvegis. fcutu svo af stað til að nálgast eitt- hvað af kumiss og tei að bjóða honum. Þá var slátrað sauð °g kjötverður framreiddur. Að lokinni máltíð tók Pakhom fram gjafir sínar úr léttikerru sinni, dreifði þeim meðal þeirra, og sömuleiðis teinu. Þessu næst tóku Baskirarnir að ræðast við sín á milli um sinn, og báðu loks túlkinn að taka til máls. „Mér er falið að tjá yður,“ sagði túlkurinn, „að þeim geðjast stórkostlega vel að yður, og að það sé venja vor að verða við óskum gesta vorra á alla hugsanlega og mögulega lund, «1 að launa gjafir þeirra til vor. Og úr því svo er, og vegna þess að þér hafið gefið oss gjafir, þá segið oss nú, hvað það er, sem vér eigum og þér gimist, svo að við getum veitt yður það.“ „Það, sem ég þrái sérstaklega," mælti Pakhom, „er eitthvað

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.