Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 73

Kirkjuritið - 01.12.1950, Page 73
Prófessor Guðjón Samúelsson húsameistari 16. apríl 1887—25. apríl 1950. Mætur og ágætur sonur íslenzku þjóðarinnar er horfinn. Maður, sem svo mikið ævistarf vann, þótt ár hans yrðu ekki fleiri, að eftir fæsta Islendinga mun liggja öllu meira verk unn- ið fyrir hina íslenzku þjóð. Hann hafði verið húsa- meistari ríkisins í 30 ár. Hefir hann gert og gera látið í teiknistofu sinni uppdrætti að nálægt 1000 húsum, þar á meðal um 70 —80 kirkjum og allt að því jafnmörgum prestsset- urshúsum og um 200 skóla- húsum, þar á meðal stór- hýsum eins og Landakots- tórkju, Landsspítalanum, Fr6u SamielW' Landsímahúsinu, Hótel Borg, Laugameskirkju, Akureyr- arkirkju, Háskólanum, Þjóðleikhúsinu, og frummynd Hall grímskirkju er sem kunnugt er fullbúin frá hans hendi. Af þessu er Ijóst, að prófessor Guðjón Samúelsson hefir ekki átt lítinn þátt í því að setja svip sinn á byggingar Islands, eins og þær líta út í dag — víðsvegar um landið. Fyrir fáum árum var rúmlega tugur erlendra blaða- manna, sem ferðaðist um Island. Ég spurði þá, hvað það

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.