Kirkjuritið - 01.12.1950, Blaðsíða 89
Fréttir.
Biblíufélagsfundur
var haldinn í Dómkirkjunni mánudagskvöldið 13. nóv. Séra
Magnús Már Lárusson prófessor flutti mjög fróðlegt erindi um
elztu íslenzku Biblíuþýðingarnar. Ný lög voru samþykkt fyrir
félagið og ný stjóm kosin. Hana skipa 9 menn, og er biskup-
inn, dr. Sigurgeir Sigurðsson, forseti hennar.
Vesturför biskupshjónanna.
Dr. Sigurgeir Sigurðsson biskup og frú hans sigldu héðan
áleiðis til New York 20. nóv. Mun hann dveljast vestra sér til
heilsubótar nokkrar vikur. Biskupshjónin eru væntanleg heim
aftur í febrúar.
Erindi um trúmál og félagsmál
voru flutt í Háskólanum á hverju kvöldi vikuna 19.—25.
nóvember. Eiga þeir góðu menn þakkir skyldar, sem gengust
fyrir flutningi þessara fyrirlestra.
Fjögurra alda árstíðar Jóns Arasonar og sona hans
7. nóv. síðastl. var minnzt í Háskólanum. Þeir fluttu þar
erindi prófessorarnir Einar Ólafur Sveinsson og Þorkell Jó-
hannesson.
Frumvarp til laga um fækkun prestakalla.
Kirkjumálaráðuneytið hefir lagt fyrir Alþingi frumvarp til
laga um breytingu á lögunum frá 1907 um skipun prestakalla.
Er þar lagt til, að 11 prestaköll verði lögð niður, m. a. Stóra-
Núpsprestakall í Ámesprófastsdæmi, en í því em 3 kirkjur og
nær 600 manns, og Staðarhólsþing í Dalaprófastsdæmi (3 kirkj-
ur og um 300 manns). Rökstuðning ráðuneytisins er aðallega
skírskotun til bréfs skipulagsnefndar prestssetra, þar sem segir,
að til mála geti komið að leggja niður allt að 11 prestaköll.
En því aðeins lítur skipulagsnefnd svo á, að gjörðar verði
jafnframt stórfelldar breytingar til bóta prestakallaskipuninni
í landinu. Fer því fjarri, að nefndin leggi til, að þessi presta-
köll hverfi úr sögunni, nema margar endurbætur verði gjörðar.
Þess er vænzt, að Alþingi leiði ekki þessar einhliða og nei-