Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 5

Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 5
Sálmur eftir dr. Manfred Björkquist. Hníga tár af hryggð og gleði, hver ein ævistund í veði, Ijós og skuggar líða hjá, lengst af mun það skiptast á. Enginn kann af eigin dáðum eða neinna manna ráðum reikna leið um lönd og geim, loks er skilar öllum heim. Dagur Ijómar, dimma þrýtur, drottinn hæða til mín lítur. Enginn fær nema aðeins hann upplýst mína braut og rann. Ofar gný, er heiminn hryggir, himinsali, þú, er byggir! Má ég vona? Samt þú sér sorg og þrá, er hjartað ber. Kristur forðum færði sanninn: Föðurauga lítur manninn. Leitar enn með vissu og von vinur jarðar, himins son. Gef mér þrek og þol að bíða, þú, sem veldur ró og kvíða, einn þú veizt minn ævistig, ekki þekki eg sjálfan mig. Ljómi sól um lönd og geima. Láttu fólkið sorgum gleyma, lát oss vita vilja þinn. Vinur allra, drottinn minn. Sigurður Norland þýddi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.