Kirkjuritið - 01.01.1951, Síða 9
HVERT SKAL HALDA?
7
nýguðfræðin né játningaguðfræðin endurlifnaða, heldur
Jesús Kristur sjálfur. Því varð það orðtak eins af biskup-
um okkar:
Trúðu ekki á gamla guðfræði.
Og trúðu ekki á nýja guðfræði.
Trúðu heldur á drottin Jesúm Krist.
Kristindómurinn er sú trú, sem Jesús Kristur boðaði
með kenning sinni og öllu lífi og starfi, dauða og upprisu.
Á hann mega engar mannasetningar skyggja.
IV.
Stefna guðfræðinnar — já, allur boðskapur kirkjunnar
á komandi árum á að miða að því að leiða í ljós dýrðar-
mynd Jesú Krists eins og hún birtist í Nýja testcimentinu,
og þá umfram allt í elztu og dýrlegustu söguheimildunum,
Samstofna guðspjöllunum. Það á að vera höfuðmarkmið
allrar guðfræði kristinna manna og viðfangsefni, og meg-
inþáttur kristilegrar prédikunar að leiða í ljós líf Jesú
Krists handan við flóknar mannasetningar, draga frá tjald-
ið, sem mistur aldanna hefir hlaðið að, og laða alla að,
sem eyru hafa að heyra: Kom þú og sjá. Kirkjan verður
að vera móðirin góða, sem kann sögur að segja, svo að
börnin hlusti af alhug við kné hennar og sjái guðlegar
myndir af hetjunni miklu, sem gekk um kring, gjörði
gott og græddi mein mannanna.
Það er þetta, sem mannkynið þarfnast umfram allt,
og þráir vitandi eða óvitandi eins og dauðþyrst jörðin
regnið.
Reynslan í löndum heiðingjanna sýnir það. Þeir hirða
ekki um trúfræðikerfi kristnu þjóðanna. En það er Krist-
ur, sem þeir þrá að heyra um, persóna hans og líf. Hann
á aðdráttaraflið mikla, er laðar þá til að taka sinnaskipt-
um og trúa fagnaðarboðskap hans um komu Guðs ríkis
hingað á jörð. Þar, sem hann er, sjá þeir eins og sól skína,
sem getur eytt kólgubökkum vetrarins og gefur fyrirheit
um vor og sumar.