Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 14

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 14
12 KIRKJURITIÐ Þar hatursskeytin flugu, svo hnigu tár og blóð. Mörg heljarmikil fallbyssa valköstum hlóð. Hin grimma haturs krumla með klaer, sem eyðir lönd, hún kyrrðist loks og breyttist í framrétta hönd. Og mannvonzkunnar hnefi, sem meiddi bróður sinn, varð mildiríkur lófi, sem tár strauk af kinn. Þá hryllti við sér sjálfum, er hlóðu í brotin skörð. Og heitstrenging um frið var af alhuga gjörð. Hjá landamæra-þjóðvegi listin byggði og hlóð stórt líkneski úr málmi. Sjá, Kristur þar stóð. Mót himni lyfti’ 'ann krossi í hátign sinni stór og horfði í ást og mildi á hvern, sem þar fór. Á fótstallinn þeir letruðu logagullin orð, sem lýstu í útlegð styrjaldar, fláttskap og morð: „Fyrr hrynji þessi fjöll en vér heyjum framar stríð; og héðan af skal bróðernið tengja vorn lýð."

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.