Kirkjuritið - 01.01.1951, Qupperneq 15
KRISTUR ANDESFJALLA
13
Þótt síðan hafi skoðanir
sífellt stangast á,
menn sjá, að engum bjargar
að vega og slá.
Úr hæðum starir Kristur
og heldur kærleiks vörð,
því helzt þar ennþá bróðerni
og friður á jörð.
Og sameinaðar þjóðir
nú sjá, að mönnum ber
að setja friðarboðann
hvar herguðinn er.
Steingrímur Arason.
Trúarjátning Einsteins.
„Almanna skoðunin á trúleysi mínu er fullkominn misskiln-
ingur.... Ég trúi þvert á móti á persónulegan Guð, og ég get
sagt það með góðri samvizku, að lífskoðun mín hefir aldrei
eina mínútu á ævi minni verið guðlaus. Þegar ég var ungur
stúdent, hafnaði ég skoðun vísindamannanna á 9. tug 19. ald-
arinnar. Mér þóttu skoðanir manna eins og Darwins, Háckels og
Huxleys þegar úreltar gjörsamlega. Menn verða að muna það,
að þróuninni miðar ekki aðeins áfram á verklega sviðinu, held-
ur einnig á trúarsviðinu, og þá ekki sízt á sviði náttúruvísind-
anna, og um flesta fulltrúa sannra vísinda má segja, að þeir
eru sammála um það, að vísindin séu ekki andstæð trúnni.
Auðvitað eru enn til fáeinir kalkaðir „vísinda“menn, sem hjakka
enn í sama farinu sem um 1880.
Ég fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að án trúar myndi
mannkynið nú vera á algeru villimennskustigi. Allt félagslíf
myndi vera harla frumstætt. Öryggi lífs og lima myndi vera
ennþá miklu minna en nú og stríð allra við alla, sem enn ríkir
með mönnunum, langtum dýrslegra. Um það er ég alsannfærð-
ur. Trúin er aflvakinn að framförum mannkynsins."