Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 18

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 18
16 KIRKJURITIÐ viðleitni manna og guðsdýrkun er fólgin alger sjálfsblekk- ing, menn fara að halda, að þeir á þennan hátt geti í raun og veru náð á vald sitt einhverju broti af guðlegu lífi, en slíkt geti aldrei átt sér stað. 1 „Auferstehung der Toten“ segir hann, að menn fyrir trúarlegar iðkanir kunni að geta virzt í öllu líferni sínu sannkristnir, fullir trún- aðartrausts og með óflekkað mannorð og hreina sam- vizku og þó þrátt fyrir allt þetta þjónað sjálfum djöflinum alla sína ævi. En vegna sjálfsblekkingarinnar og þess sjálfs- öryggis, sem menn lifi í, hafi menn ekki minnstu hugmynd um þetta. Óralangt frá trú þeirra öruggu er til önnur tegund trúar, sú sem birtist í orðum Páls í Rómv. 7, 24: ,,Ég aumur maður, hver mun frelsa mig frá þessum dauðans líkama?“ Slík trú lætur ekki blekkjast af neinu því í mannlegu fari, sem í fljótu bragði kann að virðast göfugt eða fagurt, hún sér í sambandi við mannlegt líf aðeins hneyksli, synd og dauða, djöful og helvíti og veit að maðurinn er einskis megnugur, nema Guð rétti honum hönd sína. Frá manninum til Guðs liggur enginn vegur. List, vís- indi, siðgæði eða trú greiða ekki neinum götuna til guð- legra heimkynna. En frá Guði til mannsins liggur vegur. Hann hefir Guð einn lagt. Sá vegur er Kristur. Kristur er lausnarinn mikli, hann er uppfylling þeirra vona, sem æðstar eru. Hann er opinberun guðlegs réttlætis, þess sem trúarbrögðin leituðu að án árangurs. Kristur er hin mikla opinberun um Guð, sem er jafn voldugur í náð sinni sem dómsniðurstöðum. Barth leggur á það áherzlu, að hér sé um Krist að ræða en ekki Jesú. Hinn svonefndi sögulegi Jesús, sem fram kom á sjónarsvið mannkynssögunnar í upphafi tímatals vors, er eins og hver önnur söguleg og sálfræðileg mannleg vera, háð fallvaltleik, og á (hann) ekkert skylt við það guðlega og eilífa. Hann er sem hver annar maður hlut- takandi í því ófullkomna, takmarkaða og einskis nýta lífi. Hann kom í „líkingu syndugs holds“, eins og stendur í

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.