Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 23

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 23
Ummyndun Jesú. Frásagan um ummyndun Jesú er einn af hátindum Sam- stofna guðspjallanna. Og þó er það svo, að henni er þannig valinn staður í guðspjallaröðum kirkjuársins, að mjög sjaldan er lagt út af henni. Hún er guðspjallið á 27. sunnu- dag eftir þrenningarhátíð og 6. sunnudag eftir þrettánda, en þeir sunnudagar koma sjaldan fyrir. Þessi undursamlega saga skyldi enn eiga sömu ítök í hjörtum kristinna manna sem í frumkristninni. Hún er helgidómur í lífi Jesú og lærisveina hans og hefir máttug- an trúarboðskap að flytja. Vér skulum leitast við að lifa hana í anda. Jesús er á ferð með lærisveinum sínum í fjallahéraðinu norður af Galíleu. Hann leitar einveru og kyrrðar til þess nð kenna þeim. Þeir hafa fyrir nokkrum dögum játað trú sína á það, að hann sé Messías hinn fyrirheitni. En sú trú er jarðbundin. Þeir hyggja á það, að hann verði konungur á Davíðs stóli í Jerúsalem og leysi þjóð sína undan ánauð- aroki Rómverja. En hann segir þeim, að hann sé manns- sonurinn, sem komi með ríki Guðs af himni, en framundan sér hið næsta séu þjáningar og dauði á krossi. Því næst muni hann upp rísa. Og lærisveinar hans eigi að halda krossferilinn á eftir honum. Þetta er þeim enn um megn að skilja. Og Pétur jafnvel telur í þessum efnum læri- sveininn meiri meistaranum og fer að ávíta hann fyrir þessar dapurlegu spár. Þá er það, að Jesús tekur með sér þrjá af postulum

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.