Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 28

Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 28
26 KIRKJURITIÐ himnum, sonarins og heilagra engla. Og þeir falla til jarðar fram á ásjónu sína. En fyrir Jesú eru þessi orð Guðs hin sömu, sem hljóm- uðu forðum við skírn hans, er hann baðst fyrir á Jórdan- bökkum. Síðan hafa þau verið undiralda í öllu lífi hans fram til þessarar stundar líkt og stef í voldugri hljóm- kviðu. Orðalagið er ekki nákvæmlega eins í Samstofna guðspjöllunum, en þó þannig, að finna má enduróma úr ljóðunum um þjón Drottins, sem hlýtur að þola kvöl og smán og líflát og eignast þannig fjölmarga að hlutskipti. Þessa einu bænamótt lifir Jesús það fyrir, er við mun taka um ævi hans, unz eilífðin rennur upp. Andi hans hefir teygað svölun og þrótt af lindum himinsins. Hann horfir til lærisveinanna, þar sem þeir liggja og andlitin nema við jörðu. Hann snertir við þeim og segir: Rísið upp og verið óhræddir. Þeir líta upp og litast um. Sýnin er horfin, ljóminn og verurnar frá æðra heimi. En hann er hjá þeim áfram, sem öll þessi dýrð var eins og geislabaugur umhverfis, Jesús einn. Hvernig sem um allt hitt er og hvernig sem á að skilja það, hvort heldur það er draumur eða vaka, þá eiga þeir það, sem mest er um vert, návist meistara síns og vinar — Messíasar. Dagur er á fjöllum. Og nú skal aftur halda ofan hlíðina til hinna, sem bíða neðra. Djúpur friður stafar af ásjónu Jesú, en hugir lærisveinanna eru enn í uppnámi yfir því, sem þeir hafa séð og heyrt. Jesús biður þá að segja það engum fyrr en manns-sonurinn sé risinn upp frá dauð- um. Þá fyrst mun hjartað skilja það og öðlast styrk. Þá rætist fyrirheitið, sem ummyndunin veitti þeim. Þeir festa sér þessi orð í minni. En hvemig má það vera, að manns- sonurinn rísi upp frá dauðum? Verður hann þá fyrst að deyja? Hugur þeirra rís öndverður á móti því. Og önnur vandaspurning steðjar einnig að þeim, sem erfitt er að svara: Á ekki Elía, sem birtist þeim, enn óunnið starf sitt áður en Messíasaröldin rennur upp í dýrð sinni? Þannig hafði Malakía spáð, og svo höfðu fræðimennirnir kennt

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.