Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 42

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 42
40 KIRKJURITIÐ að það sé einkum nýrri guðfræði að kenna, ef vinnukona verður ólétt. Slíkt sé einnig hugsanlegur möguleiki í lútherskum sið. Maður skyldi nú halda, að sr. Sigurbjöm væri ánægður með þetta, en því fer fjarri. Það, sem ég tek upp úr ritum Lúthers, afgreiðir hann með því, að það sé níð um hann eða kristna kirkju. En af eðlilegum ástæðum gerir hann enga tilraun til að sanna það. Heldur byrjar hann á allri sólarsögunni á ný og lætur sig ekki muna um það að halla verulega máli, til að gera hlut Gunnars sem verstan. Hann segir nú meðal annars, að Gunnar hafi tekið því fjarri að gangast við barninu. Fyrir þessu er enginn stafur í bókinni. Þvert á móti er það skýrt tekið fram frá upp- hafi, að hann hafi drengilega játað, áður en nokkur prest- ur kom til. Það er ennfremur upplýst í sögunni, að Gunnar hafi tilkynnt barnavemdarnefnd, að hann mundi bæði sjá um konuna og barnið, svo að þau skyldi ekkert skorta. Þá upplýsist það (bls. 293), að konan hafi ekki gert neitt, sem hún hafi ekki viljað sjálf. Gunnar hafi jafnan komið fram við hana af fyllstu alúð og virðingu, allt samlíf þeirra hafi verið heiðarlegt og konan sé fyllilega hamingjusöm. Bæði séu „í sátt við Guð“. Þrátt fyrir þetta gengur klerkur að því eins og grenj- andi Ijón að reyna að gifta þau, þótt hvorugt óski eftir því. Er prestur einkum skelfingu lostinn yfir atferli Gunn- ars, af því að hann hafði nýlega talað í trúboðshúsinu og jafnar því glæp hans við svik Júdasar, og sér í barn- unganum áþreifanlegt verk djöfulsins. Allt þetta telur hann hins vegar verða mimu prýðilega kristilegt, ef unnt reynd- ist að skrúfa þessar syndugu persónur saman í hjónaband. Þannig fara þessir guðsmenn að því að „hylja saurinn“. Séra Sigurbjörn talar mikið um það Kristin sjónarmið. í þessu sambandi, að ég sé með óskammfeilna dóma um „frumlæg kristin sjónarmið". Dómurinn er nú enginn annar en hinn

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.