Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 46

Kirkjuritið - 01.01.1951, Side 46
44 KIRKJURITH) hennar og lemja hana þar grjóti til bana. Hins vegar giltu engin slík ákvæði um karlmenn. Gefur þetta reyndar grun um, að í þessum sökum hafi Gyðingurinn haft næm- ari tilfinning fyrir skerðingu eignarréttarins en syndinni sjálfri, enda var konan talin með annarri eign mannsins, svo sem akri, uxa og fénaði, eins og í boðorðunum stendur. Þessi stórkostlega siðabót gagnvart kvenkyninu átti sér þá vitanlega einnig aðrar rætur. Á öllum öldum hefir sú grimmd og ofstæki, sem vart verður í afstöðu göfugra manna til þessara mála, mótazt af þeirri heilögu afbrýði- semi, sem hvergi stendur að baki tilfinningum þeim, sem hrærast í brjóstum hrúta, sem stangast. 1 Jóhannesarguðspjalli er sögð saga af fræðimönnum og Fariseum, sem ætla að fara að framkvæma þessa æðri tegund af siðgæði á konu, sem staðin var að hórdómi. Þeir spyrja meistarann ráða, til að fá hann til að „gata“ í siðfræði. Hann gefur þeim lítinn gaum í fyrstu og tekur að rita í sandinn, en segir síðan af tómi: „Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana.“ Þessi göfugmenni laumuðust burt hver á fætur öðrum. Seinast var konan ein eftir. Jesús sagði við hana: „Kona, hvar eru þeir? Sakfelldi enginn þig?“ Hún svaraði: „Enginn, herra.“ En Jesús sagði: „Ég sakfelli þig ekki heldur.“ Ef sr. Sigurbjörn hugsaði örlítið um þessa sögu, kynni dómarasvipurinn á andliti hans aðeins að hjaðna. Sá saga fylgir Stóradómi, að einn dómendanna hafi verið andvígur honum, og hafi flestum orðið glæpur á, nema honum. Sýnir þessi þjóðsaga heilbrigt mat alþýðu manna á hinu „æðra“ siðgæði rétttrúnaðarins. Ég býst við, að fleirum en mér kunni Guðfræðipróf að veitast það dálítið erfitt að fylgj- hjá sr. Sigurbimi. ast með hinum lærðu latínuskýring- um sr. Sigurbjarnar á því, að orðið gerspilling þýði ekki gerspilling, heldur spillingu í mann- inum, sem nái bæði til líkama og sálar. Slík miðaldarök- fræði er í raun og veru ákaflega ómerkileg gagnvart þeirri

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.