Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 49

Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 49
47 ÉG TRÚI Á GUÐ EN GRÝLUR EI hann getur engan möguleik hugsað sér annan, en að játn- ingin skuli einhvern veginn gilda, annað hvort aftur á bak eða áfram. Þarf ekki að fjölyrða um slíka fásinnu. Vel get ég verið sr. Sigurbirni sammála um það,. að hornsteinn alls kristindóms sé hjálpræðið í Kristi. En jafn óhrakin er röksemdaleiðsla mín fyrir því, að hornsteinn rétttrúnaðarins sé gerspillingarkenningin. 1 ritum rétttrún- aðarmanna gengur djöfullinn alls staðar um kring eins °g grenjandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt, °g eftir röksemdum þeirra gleypir hann langflesta og hirðir mesta eftirtekjuna af sköpunarverki Guðs. Þegar djöfullinn er orðinn slíkt ógnarvald, sem hvarvetna skákar gæzku Guðs út í hom, svo að hennar gætir nauðalítið, þó að Drottinn nái til sín fáeinum rétttrúuðum, þá er auðséð, hver er orðinn húsbóndinn á heimilinu. Fyrirgefning Guðs kemst hvergi að, nema samkvæmt lögum og reglum rétt- trúnaðarguðfræðinga. Þeir, sem þannig trúa því, að djöfullinn sé Guði alla Vega máttugri og slyngari í baráttunni um mannssálirnar, trúa á þessa persónu framar Guði! Þetta er röksemdafærsla min í hinni fyrri grein, og hefir sr. Sigurbjörn hvergi treyst sér til að hreyfa við henni einum fingri, heldur fanð kring um hana eins og köttur um heitan graut. Það þýðir ekkert að halda því fram, að þeir, sem lögðu fram Ágsborgarjátninguna, hafi talið að Guði væri alvara aÓ bjarga mönnunum, ef alls staðar skín út úr sömu játn- ingu, að annað hvort hafi hann ekki viljað eða getað. ®f Guð hefir fyrirhugað aðeins fáa útvalda til frelsunar eins og þessir menn halda fram, þá er ekki nema um tvennt að gera. Annað hvort hefir hann ekki getað eða vifjað bjarga hinum. Slík trú er ekkert annað en vantrú á Guði. Og það er íjarskalega auðvelt að útskýra þessa trúarsetning. Hún er til orðin af trúarþröngsýni þeirra, sem halda að Guð hugsi nákvæmlega eins um trúmál og sjálfir þeir, halda að vizka Guðs og kærleikur sé ekki stærri en ofstæki þeirra

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.