Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 72

Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 72
70 KIRKJUROTÐ og létt skap á hinn bóginn draga úr broddum hans. Marg- ir eru nú komnir á þá skoðun, að magasár sé að uppruna til starfrænn taugasjúkdómur, þótt lokastig hans sé vef- rænt sár. Langvinnt sálarlegt farg og barátta andstæðra tilfinninga truflar sálarlegt jafnvægi. Sálarlífið hefir að- setur sitt í vissum stöðvum heilans. Þaðan stýrir það og stjórnar allri líkamsstarfseminni með aðstoð fjölda milli- stöðva. Truflist andlegt jafnvægi, hefir það áhrif á lægri stöðvar, þaðan sem ósjálfráðum störfum er stýrt. Á þenn- an hátt nær sorgin að örva tárakirtlana, svo að dæmi sé nefnt. Á svipaðan hátt getur sálarlegt farg breytt starfi magakirtlanna, aukið það eða minnkað. Kemur það þá fram sem truflun á myndun magasýru og annarra melt- ingarvökva. Verði þær truflanir nógu miklar, leiða þær að lokum til skemmda á magaslímhúðinni, þannig að á hana dettur sár. Til stuðnings þessari kenningu um upp- runa magasárs er fleira en líkur einar. Vísindalegar at- huganir og tilraunir, svo langt sem þeim er komið, styðja þessa skoðun. Líkt og svipað er að segja um marga aðra líkamlega sjúkdóma. Þannig er hár blóðþrýstingur sennilega oft af- leiðing sálrænna truflana. Eins og blóðþrýstingur hækkar í bili hjá manni í reiðikasti, eins getur langvinn, niður- bæld gremja valdið varanlegri hækkun hans. Hið sama gildir um mörg tilfelli ofnæmissjúkdómanna svonefndu og ýmsar tegundir giktar. Astma, sumir húðkvillar, höfuð- verkur og liða- og vöðvaverkir eru oft greinilega háðir sálarástandi sjúklinganna. Til grundvallar þeim liggja óleystir andlegir erfiðleikar. Þótt hér sé fullyrt, að margir vefrænir sjúkdómar séu sálrænir að uppruna, skal það viðurkennt, að margt er enn á huldu x þessu efni. Rannsóknir eru enn of skamrrit á veg komnar, en áhuginn á þeim er vaknaður. V. Niðurstaða þessa máls er sú, að framvegis munu lækn-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.