Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 88

Kirkjuritið - 01.01.1951, Page 88
86 KIRKJURITIÐ herbiskupinn, að hún hefði það orð á sér, að hún væri strang- lútherskasta kirkjan, sem fyrirfyndist í heiminum. Kennimenn hennar fylgja mjög fram skoðunum Lúthers og eru sérstaklega vel heima í ritum hans. Fengum við síðar margvíslegar sann- anir fyrir réttmæti þessara ummæla. Annað aðalumræðuefni prestamótsins var: Þjóðkirkjan og ríkið — frelsi og skuldbinding. Laugardaginn 5. ágúst hófust umræður um það mál. Fram- sögumenn voru stórþingsmaðurinn pastor H. C. Christie Sta- bekk, Noregi, og dr. H. Ove Hassler frá Linköping. — í um- ræðunum kom það sjónarmið skýrt í ljós, að menn óskuðu eftir, að ríki og kirkja héldu saman, svo sem verið hefir um aldaraðir. Menn litu svo á, að það væri mun happasælla fyrir þjóðfélagið að hafa eina sameinaða þjóðkirkju heldur en að kirkjan klofnaði í margar sundurleitar kirkjudeildir og sértrú- arflokka. Þótt svo líti út sem sértrúarflokkamir gætu vakið meiri áhuga á trúmálum meðal fylgjenda sinna, hefði það sýu*- sig, að sá áhugi væri oft skammær og árangurinn stundum ærið vafasamur. Menn virtust í þessum efnum yfirleitt fylgí3 því sjónarmiði, sem sett var fram af mennta- og kirkjumála' ráðherra Finna, að kirkjan og ríkið ættu að haldast í henduti eins og systkin, ríkið ætti ekki að blanda sér í málefni kirkj' unnar og kirkjan ekki að gera kröfu til að segja ríkisvaldinu um of fyrir verkum. — Umræður um þetta mál stóðu frá Pv) kl. 10 um morguninn til kl. 4 um daginn, er fulltrúar fóru 1 heimsókn til menntamálaráðherrans. Hafði hann boð inni fyr*r fulltrúa mótsins. Móttakan fór fram í hinum glæsilegu salat' kynnum, sem áður voru heimkynni og aðsetursstaður rússneska landstjórans, meðan Finnland var rússneskt stórhertogadæiu1- Um kvöldið var fulltrúum ekið út fyrir borgina til gistihúss þess, er Fiskartorpet nefnist. Er það eitt hið stærsta og veg' legasta í Helsingfors. Umhverfis gistihúsið eru miklir skrúð' garðar. í skrúðgörðum þessum eru einnig veitingar ýmis konah og safnast þangað ætíð fjöldi fólks. — í gistihúsi þessu var fulltrúum búin veglegasta veizla og var þar setið lengi kvölds- Undir borðum voru fluttar margar ræður, og sungu finnskit prestar einsöngva á milli. Áður en staðið var frá borðuh>> kvaddi sér hljóðs einn fulltrúi frá hverju Norðurlandanna °%

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.