Kirkjuritið - 01.01.1951, Síða 92
90
KIRKJURITIÐ
satt. Innst inni hefir hann sömu þörf á hjálp kirkjunnar og
fyrr. Hann notar að vísu sín eigin orð og hugtök og finnst
boðskapur kirkjunnar óraunsær og fjarlægur viðfangsefnum
nútímans. En munum samt, að hann er aðeins maður og þarfn-
ast því hjálpar, bæði í andlegu og líkamlegu tilliti. Til eru þeir,
sem halda, að við sækjumst eftir valdi. Það er rangt. Vald er
það versta, sem kirkjan getur fengið, jafnvel verra en ofsókn.
Kærleikurinn þekkir engin sérréttindi eða fríðindi sér til handa-
Ef við sækjumst eftir slíku, sýnir það aðeins, að okkur skortir
kærleika.
Margir óttast, þegar þeir horfa fram, að kirkjan muni ekki
fá staðizt. Það þurfum við ekki að óttast. Hjálpina gegn öllum
ótta finnum við í bókinni. Gagnvart henni hverfur allur ótti.
Hún hefir að geyma þau verðmæti, sem standast, jafnvel þótt
allt annað farist. Um 1880 gaf Georg Brandes kirkjunni tuttugu
ára frest. Að honum liðnum væri hún úr sögunni. Hvert var
svar kirkjunnar? Á þessum tuttugu árum voru reistar fleiri
kirkjur í Kaupmannahöfn en nokkuru sinni fyrr. — Enn í dag
er þetta bezta svar kirkjunnar. Afdrif hennar verða aldrei ráðin
af orðum eða ytri árásum, heldur af því innra lífi, sem í henni
býr. —
Og ef við horfum fram, alveg á leiðarenda, þá hverfur allur
ótti.“ —
Næsta dag hófst fundurinn með morgunbæn í Dómkirkjunni-
Að henni lokinni hófst sjálfur aðalfundur félagsins. Stjórnin
gaf skýrslu um starf og f járhag félagsins frá síðasta aðalfundi-
Einnig var kjörinn formaður. Fráfarandi formaður, J. Ö. Diet'
richson, dómprófastur, baðst undan endurkjöri. í hans stað var
því kjörinn J. Smidt, sóknarprestur í Osló. Síðan voru rædd
ýmis félagsmál. Eftir hádegið var flutt framsöguerindi, ef
nefndist: Hvernig getum við gert prestafélagið virkara? Miklar
umræður urðu á eftir.
Um kvöldið var haldin hátíðarsamkoma í tilefni 50 ára a^'
mælisins. Fyrst var snæddur miðdegisverður. Að honum lokn'
um flutti H. Seip, prófastur í Skien, hátíðarræðu, þar sem hann
minntist liðinna ára í sögu félagsins. Að ræðu hans lokinn1
voru flutt ávörp frá prestafélögum hinna Norðurlandanna-
Prestafélag íslands sendi skrautprentað ávarp, bundið í skinn-
Þennan dag varð Berggrav biskup 66 ára. í því tilefni send1