Kirkjuritið - 01.01.1951, Qupperneq 94
92
KIRKJURITIÐ
lenzkum málefnum. Allir æsktu nánari samvinnu í kirkju- og
kristindómsmálum og létu í ljós von um, að hún mætti takast
á næstu árum meira en hingað til. Slík samvinna mundi verða
okkur til ómetanlegrar blessunar, bæði íslenzku kirkjunni og
allri þjóðinni í heild. Vonandi gefst Prestafélagi íslands tæki-
færi til að endurgjalda þetta heimboð og alla þá vináttu, sem
íslandi þar var auðsýnd.
Að lokum við ég aðeins geta þess, að margir báðu fyrir
kveðjur heim til íslands, bæði til einstaklinga og almennt. Þeim
kveðjum er hér með skilað.
Tuttugasti aðalfundur Prestafélags norsku kirkjunnar er nú
liðinn og aðeins til í minningunni. En sú minning er kær,
minning um vináttu og bróðurhug. Sú minning geymist og
varðveitist. Megi almáttugur Guð blessa norsku og íslenzku
kirkjumar, norsku og íslenzku þjóðirnar.
Jónas Gíslason.
(Frásögnin nokkuð stytt).
Séra Einar Pálsson,
fyrrum prestur í Reykholti, andaðist að heimili sínu, Laugar-
bökkum í ölfusi, 27. janúar 82 ára að aldri. Minningargrein u®
hann mun verða birt í næsta hefti Kirkjuritsins.
Skovgaard-Petersen og Biblían.
Skovgaard-Petersen prestur hefir komizt svo að orði í erindi
fyrir presta: „Biblían er ekki lögbók fyrir oss eins og Gyðinga-
Vér höfum enga fjórðu grein trúarjátningarinnar, er hljóðar
svo: Ég trúi á Biblíuna. Sá, sem segir, að hann fyrir Guðs náð
trúi á allt, sem stendur í Biblíunni, flytur orð — orð innan tóm
og er ekki annað en leikari."
Gjöf til minningar nm séra Halldór Johnson.
Nokkrir vinir séra Halldórs Johnsons hafa gefið Háskóla-
kapellunni 100 dollara til minningar um hann. Þakkar guð'
fræðisdeildin þessa gjöf.
Myndin
framan á kápu Kirkjuritsins er af Sauðárkrókskirkju. Huu
er reist 1892.