Kirkjuritið - 01.05.1957, Síða 5
HVÍT ASUNNUBOÐSKAPUR
195
þjónustu Krists, að vér verðum fús verkfæri í hendi honum
til þess að vinna að hjálpræðisverki hans. Nú kemur Hvítasunn-
an og segir oss, að eina leiðin til þess að öðlast styrk í stað
veikleika sé sú að veita viðtöku löggjöf andans, sem brevtir
lærisveinunum vons\'iknu í hugrakka votta.
Fyrir því grátbiðjum vér yður, bræður, að biðja Guðs, svo að
vér megum verða klæddir krafti frá hæðum. Vér eigum oft svo
annríkt í starfi voru fyrir Guð, að vér gleymum Guði sjálfum
og bíðum ekki andans. „Ekki með valdi né krafti, heldur fyrir
anda minn, segir Drottinn hersveitanna."
Megi samfélag vort við Krist í Alkirkjuráðinu sýna þjóðun-
um, að til er lýður Guðs, sem lifir í krafti heilags anda. Megi
það bera skýrt vitni þess til endimarka jarðar, að andinn gjörir
mennina í raun og veru hæfa til þess að framkvæma hjálpar-
ráð Guðs börnum hans til handa.
Forsetar Alkirkjuráðsins:
John Baille (deildarforseti, Edinborg).
Sante Uberto Barbieri (biskup í Buenos Aires).
George Cicester (biskup í Chichester).
Otto Dibelius (biskup í Berlín).
Juhanon Mar Thoma (kirkjuhöfðingi á Suður-Indlandi).
Michael (erkibiskup í New York).
Henry Knox Sherrill (biskup í New York).
Á. G. þýddi.