Kirkjuritið - 01.05.1957, Side 7

Kirkjuritið - 01.05.1957, Side 7
SJÁ, ÞAR ER MAÐURINN 197 En hvar ertu þá? Tekurðu kannski alls ekki þátt í göngunni fram til krossins? Víst svo. í þeirri för erum vér öll þátttak- endur með einhverjum hætti. En þarna er líka fólk, sem harmar og grætur yfir honum. Fólk, sem liefir veitt honum fulltingi í lífi og starfi, fólk, sem hér sér á bak sínum vildasta vini. Kannski ert þú þar! Og hér mætum vér manni, Símoni frá Kýrene. Hann kemur utan af akri og veit ekki einu sinni, hvað er á seyði. Og þeir taka hann og neyða hann til að bera krossinn eftir Jesú. Kannski neyða aðstæður oss til að fylgja honum á göngu hans, kannski óskum vér að víkjast undan skyldunni við hann um sinn. En Símon á sér væna syni, og seinna meir verða þeir Rúfus og Alexander dyggir þjónar Jesú, sem telja ekki eftir sér að taka á sig byrði hans vegna. — Kannski kemur þú aðvífandi og veizt ekki einu sinni til, að neitt hafi gerzt! Og enn taka miklu fleiri, sem hér verða ekki taldir, þátt í göngunni að krossinum. Einn þeirra er lærisveinninn, sem Jesús elskaði. Vissulega elskar hann allt þetta fólk og þá lærisvein- ana líka. En þessi, þessi er honum alveg sérstaklega hjartfólg- lnn, eins og vér getum liaft einstakar mætur á yngsta bróður vorum eða systur, eða eitthvert barna vorra snertir strengi í brjóstum vorum, sem enginn annar fær komið til að titra, hvort sem það er vegna bemsku þess eða af því að það brosir eða grætur öðru vísi en hún. Lærisveinninn elskaði, Jóhannes: Sjá, þar er móðir þín. Og upp frá þeirri stundu tekur lærisveinn- mn hana að sér. Kannski kæmi honum líka vel, að vér tækj- nm einhvern að oss, vér bærum einhvern ofurlítið meira fvrir brjósti. Hver veit nema vér getum komizt í námunda við læri- sveininn elskaða og numið þar orð, sem segja oss, til hvers er ætlazt af oss, ef vér þá vissum það ekki áður. Hér erum vér eitt kvöld á langaföstu, eina stutta stund. Og þessari stund fylgir mikil ábyrgð svo sem öllum öðrurn andar- tökum lífs vort. Líf vort er ganga pílagrímsins frá vöggu til grafar. Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng — 'Sjá, þar er maðurinn. Og stendur þá ekki næst oss að líta í eigin barm. Hver er ég þessa kvöldstund? Hver var ég í gær?

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.