Kirkjuritið - 01.05.1957, Síða 15
PISTLAR
205
Sumaióskii.
Enn er „sól og sunnanvindur og Sörli ríður í garð.“ Vorið
ber hvarvetna ljós í bæinn og græðir bezt hugartúnin.
Það er garnall landssiður að berja sér, og ekki sparað nú
frekar en áður. Staðreyndin hins vegar sú, að fáar eða engar
þjóðir í veröldinni búa við betri né jafnari lífskjör. Og með þeim
tækjum, sem vér eigum nú, mun sumarið flytja oss mikla björg
í bú. Hins vegar er ljóst, að ekki höfum vér efni á að varpa
fornum dyggðum fyrir borð, svo sem vinnusemi og trúmennsku
í starfi, nýtni og sparsemi. íslenzk tunga, þjóðleg verðmæti
°g hugsjónir kristindómsins verða einnig sem fyrr að skipa
öndvegið í hug og hjarta.
Ég óska öllum gleðilegs sumars með því að biðja þeim bless-
unar.
Gunnar Árnason.
Sonarrækt.
Kæru foreldrar. Kæru látnu foreldrar, sem lifðuð eitt sinn ykkar kröfu-
lausa lífi í þessu húsi, ykkur á ég allt að þakka. Hugrakka mamma mín,
eldmóð þinn léztu mér í arf. Og liefi ég nokkru sinni tengt mikilleik
vísindanna mikilleik ættlands vors, þá er það vegna þess, hve ég er háður
þeim skoðunum, sem þú innrættir mér. Og þú, kæri faðir, sem áttir alltaf
jafn stranga ævi og þitt daglega erfiði bar vott um, þú sýndir mér, hvað
þolgæðið getur áunnið í daglegu starfi. Þér á ég að þakka óbugandi
' ilja í daglegu starfi. En þú áttir ekki aðeins þrautseigju við hagnýt verk-
efni. Þú dáðir líka mikilmenni og stór hlutverk. Þú hefir kennt mér að
Wfa hátt, læra af því háa og stefna jafnan hátt. Blessuð séuð þið bæði
fyrir allt, sem þið voruð, og mætti mér auðnazt að færa yfir á vkkar hend-
Ur allan þann heiður, sem í dag hefir veizt húsi þessu.
Louis Pasteur (Við vígslu minningartöflu í húsinu, sem hann fæddist í.)