Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 17
NESKIRKJA
207
Biskup flytur vígsluorðin.
birtu í dauft sólskin í kórnum, þótt ekki falli sól á gluggann.
Einangrun er korkur á veggjum að neðan, en ofan trétex og
tvöfalt loftrúm.
Klæðning að innan er að nokkru hljóðeinangrunarplötur en
aðallega harðviðarplötur 10 mm. þykkar, sem eru vandaðar og
h'mdar með vatnsþéttu lími. Linoleum dúkur er á gólfi en park-
ett gólfflögur í forsal. Teppi er á kór og göngum.
Raflýsing er þannig, að mjög sterk lýsing er yfir kórnum og
cr ljósaútbúnaður sá ósýnilegur úr kirkjusal. Kórinn er því
mjög bjartur og mun meira upplýstur en kirkjusalurinn, en
innibyggðar fljóðljósapípur lýsa kirkjusal. Eru þær tvöfaldar,
svo nota má hálft Ijósmagnið, ef slíkt þykir henta betur. Lagnir
fyrir heyrnartæki eru að sumum sætum.
Kirkjan er öll hituð upp með hitaveitu, afrennslisvatni frá
Melaskólanum, og er þegar fengin reynsla fyrir því, að sá hiti
er nægur. í aðal kirkjusal eru föst sæti fyrir 345 manns og laus
^æti fyrir 100 menn í hliðarsal. Auða plássið milli kórs og föstu
sætanna og að nokkru hinn breiði gangur er einnig ætlað fyrir