Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 41

Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 41
Fjög'urra niánaða liarmlcikur kirkju vorrar í IJngvcrjalandi - 4. ÁGÚST - Eftir langar sanmingsumræður inilli forystunianna Lúterska heinis- sambandsins, ungversku stjórnarinnar og Lútersku kirkjunnar á Ungverja- landi var því lýst yfir, að Lajos Ordass biskup hefði verið dænidur sak- laus frá embætti 1948 og skyldi nú hljóta fulla réttingu mála sinna. Yfirvöld ríkisins hétu því að athuga það, hvort ekki yrði unnt að setja hann inn í biskupsembætti á ný. En þangað til skyldi hann afsala sér embættinu og gegna ef til vildi í þess stað háskólakennaraembætti í guðfræði. Laslo Dezsery biskup og stallbróðir hans andmæltu því, að Ordass yrði aftur biskup, og reyndu með öllu móti að koma í veg fyrir það. - 1. SEPTEMBER - Prestar hófu á árlegri prestastefnu sinni mjög að gagnrýna kirkju- stjómina, kröfðust skýrslu um gang Ordassmálsins og bám fram til- lögur til úrbóta. Kirkjan yrði að halda reikning við sjálfa sig, iðrast og láta hreinsast af syndum síðustu ára. - 28. SEPTEMBER - Blað Lúterstrúarmanna á Ungverjalandi skýrði frá því, að tvair lút- erskir prestar, sem nýlega liöfðu verið settir af vegna ósamkomulags við stjómendur kirkjunnar, hefðu aftur verið settir inn í embætti sín. - 6. OKTÓBER - Umsjónarmanni Lútersku kirkjunnar á Ungverjalandi var tilkynnt, að æðsti dómstóll ungverska lýðveldisins hefði lýst sakleysi Lajos Ordass °g þannig ónýtt dómsúrskurð réttarins 1948. - 18. OKTÓBER - Ordass biskup afsalaði sér embættinu um stundar sakir, unz hann gæti aftur tekið til starfa sem biskup.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.