Kirkjuritið - 01.05.1957, Page 43
HARMLEIKUR KIRKJUNNAR í UNGVERJALANDI 233
- 1. NÓVEMBER -
Vetoe biskup segir af sér. Ordass biskup verður yfirmaður allrar
kirkjunnar. Hann skýrir frá því í Genf, að enn séu engin ráð fundin
til þess að bæta úr skorti Ungverja. Kirkjan á mörg persónuleg vanda-
mál óleyst. Fé skortir til þess að hefja starf fyrir konur og unglinga og
launa prestana.
- 2. NÓVEMBER -
Ordass biskup flytur ávarp i útvarp frá Búdapest, á ensku, þýzku,
sænsku og ungversku: „Við oss blasir mikill missir í söfnuðum vorum,
og margar fjölskyldur hafa misst fyrirvinnu sína. Marga særða skortir
meðul, og mikið tjón er orðið á húsum vorum og öðrum jarðneskum
eignum. Vér biðjum yður í nafni Krists: Hjálpið oss. Vér viljum gjöra
alit, sem í voru valdi stendur, til þess að kirkja vor geti orðið til hjálpar
þeim, sem þjást allt umhverfis oss. Guð blessi yður öll“.
Miklar birgðir berast Búdapest fyrir atbeina Lúterska heimssambands-
ins. Hjálparstöð er komið upp. Fulltrúi sambandsins hittir Ordass biskup,
og biskup segir: „Oss langar ekki til að taka þátt í stjómmálunum. Vér
þráum einungis frelsi vort. Eftir því sækjumst vér, enda þótt vér verð-
um skotnir fyrir það á morgun.“
Ymsir forystumenn, m. a. Karoly Gmnvalsky, aðalritari kirkjunnar,
fara að dæmi Dezsery og Vetoe og segja af sér.
- 3. NÓVEMBER -
Ordass biskup boðar til kirkjufundar í Búdapest, og kýs fundurinn
Zoltan biskup Turoszy að yfirmanni biskupsdæmis nyrðra. Hann hafði
verið neyddur til að segja af sér árið 1952.
- 4. NÓVEMBER -
Hússar hófu árás. Sambandið var rofið milli Genf og Búdapest.
- 9. NÓVEMBER -
Hanns Lilje biskup, forseti Lúterska heimssambandsins, símar til Eisen-
howers Bandarikjaforseta og biður hann um hjálp til að koma aftur á
friði í heiminum.
Herra Grunvalsky freisar þess að ná aftur embætti sínu, en mistekst.
Ordass biskup svarar: „Vér munurn ekki sleppa stöðum, sem vér eigum
fullan rétt á, nema þeir felli oss í fjötra."