Kirkjuritið - 01.12.1958, Qupperneq 9
****-)<-)< —* * * * * -k
Frá Palestínuíöi.
(Útvarpseríndi Í9.júní 1958).
Með því, að frá ýmsu hefir verið skýrt i sambandi við Palestínuför
okkar á s. 1. hausti, hefi ég tekið þann kostinn, að koma viða við í eftir-
farandi erindi, enda þótt mér sé vel ljóst, að i svo stuttu máli verði aðeins
brugðið upp nokkrum myndum, en hvergi um tæmandi lýsingu að ræða.
Ferð þessi var farin á vegum norsks útgerðarfélags — með járnbrautarlest
til Genúa í Italiu. Þaðan siglt með Brandi VI. — oft í þungum sjó og
á móti eyðurmerkurroki -— til Alexandríu í Egyptalandi, sem lá fyrir
framan okkur — ljósum prýdd, þegar við litum hana fyrst nokkru fyrir
dögun. Frá Alexandríu til Kairó og það markverðasta skoðað þar. Því
næst haldið sjóleiðina frá Alexandríu til Beirut í Libanon, sem svo oft
hefir verið getið í fréttum siðustu vikur og daga, og nú virðist vera mesta
hættusvæði veraldar. — Myndir koma fram í hugann frá gamla borgar-
hlutanum í Alexandriu — þar sem tötrum klæddir Arabar risu af svefni
á gangstéttunum, æpandi og aðgangsharður sölulýður við skipshlið og á
leið okkar til bilanna. Svo er það eyðimörkin endalaus, sólsviðin, hvildar-
laus, aðeins óasinn Wadi Natrum með yndislegum, grænum trjálundum.
Pýramídamir stórfenglegu, Keopspýramidinn, risamannvirkið, undur ver-
aldar. Sakkara með pýramidum og neðanjarðar grafhýsum, Memphis,
rústir hinnar fornu borgar, hinnar fomu dýrðar. Gróður Nilardalsins
fegurri og margbreytilegri en orð fái lýst.
Og svo sjálf Kairó með stórhýsum sinum og skrauthýsum — með ný-
tízku hverfin og ævaforna borgarhlutann. Egypzka safnið, moskan mikla,
hið austurlenzka fyrirbœrí: bazararrár í götunum þröngu. Steikjandi hiti,
æðisgengin og hávaðasöm umferð og mannþröng á götum úti. Úlfaldar,
asnar og arabiskir hestar sem farartæki innan um gljáfægða bilana. Austrið
og vestrið mætast í hinum margvislegustu myndum hér eins og víða ann-
ars staðar. Ströng gæzla á vegum úti og hemaðarviðbúnaður Nassers —
með öllu þvi, sem slíku fylgir, er mjög áberandi í Egyptalandi nútimans.
Myndir frá Egyptalandi gætu auðveldlega fyllt heilt erindi; örbirgðin
æpandi annars vegar — háreistar skrauthallir og óhófslíf á hinu leitinu.
En á brott skal haldið frá þessu landi fomrar menningar í átt til land-