Kirkjuritið - 01.12.1958, Blaðsíða 33
Krossinn í hliSinni milli Bolungavíkur og IsajjarSarkaupstaSar.
Jesús, barnið helga, sem fæddist hina blessuðu jólanótt! Vér krjúpum
þér, eins og allir þeir, sem litu þig nýfæddan sveininn. Þú valdir þér fjár-
hús til gistingar, forsmá þú ekki að gista hjörtu vor. Að vísu er þar hvorki
hreint né rúmt. En hreinsa þú þann bústað af skrani og skarni veraldar.
Himneska bam, beyg þig undir hinn lága dyrastaf hjartna vorra og setztu
að i þeirri þröngu kytm. Sakleysi þitt sé oss þar ljúfur ilmur. Gef oss hinn
fjálga barnshuga, svo að vér heyrum englana lofsyngja Guði og tökum
fagnandi undir helgan söng þeirra.
Gerhard Tersteegen.
Trú, sem væri nægilega smávægileg fyrir skilning vorn, mundi ekki
vera nægilega mikil til að fullnægja þörfum vorum. — Arthur Balfour.
Það er ekki unnt að henda grónum venjum út um gluggann. Það
verður heldur að lokka þær þrep fyrir þrep niður stigann. — Mark Twain.
Þegar vandkvæðin steðja að, vaxa sumum vængir; aðrir kaupa sér
hækjur. — Harold Ruopp.
Hvers vegna geta ekki vandamál lifsins steðjað að oss, þegar vér emm
17 ára og vitum alla skapaða hluti. — A.C.Jolly.