Kirkjuritið - 01.12.1958, Page 30

Kirkjuritið - 01.12.1958, Page 30
460 KIRKJUEITIÐ þess að uppskera lífið með Honum. Helgisögnin segir frá lítilli stúlku, er sat í innsta sætinu á stórri dómkirkju. Er offrið var tekið, bað hún þess, að fórnardiskurinn væri settur niður á gólfið. Síðan sté hún á hann, lyfti augum mót altar- inu og sagði: „Ó, Guð, ég gef þér sjálfa mig“. I þessum anda ber oss að helga fjármuni vora þjónustunni við Guð. Og hér ræðir ekki aðeins um peninga heldur tíma, gáfur, starf og kraft, erfiði, svita, blóð og tár. Ef vér helgum þannig einhverju starfi, hvort heldur beinlínis tíma og erfiði, eða óbeinlínis fjármuni, sem eru tákn þessara gilda, þá höfum vér brennandi áhuga á því verki, -— hjarta vort er þar. Hjarta þitt og sál þín er í kirkjunni, hafir þú fólgið þar fjársjóð þinn. Hjörtu vor eru einnig í trúboði kirkjunnar að sama skapi og vér helgum því bænir vorar, fræðslu og fjármuni. Móðir nokkur, sem misst hafði bam sitt, játaði, að þótt hún gæti aldrei sigrazt á söknuði sínum, hefði hún samt áunnið annað, sem væri ómetanlegt. Áður var himinninn mér nafnið tómt. Nú „er hjarta mitt þar, því að þar er fjársjóður minn“. Þegar vér fórnum Jesú einhverju, sönnum vér sannarlega, að „sælla er að gefa en þiggja“. Með þvi að gefa honum allt, felum vér honum hjörtu vor. Þegar fjársjóður hjarta vors er í höndum hans, er trúin og kirkjan og starfið oss hjartfólgið. Hugsjónar „umboðsmennskunnar" (Stewardship) gætir nú um allan heim, en hún er grundvölluð á boði Drottins sjálfs og lögð frumkirkjunni á hjarta af postulunum. (Sjá t. d. 1. Pét. 4, 10—11). Nú á tímum færist hún æ í aukana. Það er sannfæring mín, að einnig má glæða þá hugsjón innan þjóð- kirkjunnar, og mér er hvert merki hennar innan islenzku kirkjunnar til fagnaðar. M. a. þótti mér vænt um að heyra, hve herra biskupinn, Ásmundur Guðmundsson, lagði ríka áherzlu á hinn almenna prestsdóm við opnun fyrsta kirkju- þingsins í haust. Því betur sem kristnum mönnum verður ljóst, að kirkjan er ekki prestafélag, ríkisstofnun, né fagurt og veglegt guðs- hús, heldur félag allra, sem trúa á Krist, þeim mun skýrari verður mönnum hugsjón ráðsmennskunnar. Þegar allir með-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.