Kirkjuritið - 01.12.1958, Side 42
472
KIRKJURITIÐ
in: Komið til mín. Einar Jónsson myndhöggvari málaði þetta
ágæta listaverk og gaf kirkjunni. Vel æfður kirkjukór söng
við guðsþjónustuna. Organleikari er Guðmundur Jónsson frá
Valbjarnarvöllum og hefir verið yfir sextíu ár. Hefir hann
öll þessi ár unnið mikið og gott starf fyrir kirkjusönginn í
héraðinu.
Við Hvammskirkju í Norðurárdal starfar einnig stór og
góður kór. Organleikari hennar hefir verið um fjölda ára
Sverrir Gíslason, bóndi í Hvammi. Kirkjan er nær 80 ára
gömul, en á henni hafa farið fram gagngerar endurbætur
og hún notið beztu umhirðu, svo að hún á að geta staðið
enn um hríð. Altaristafla hennar er fögur mynd af Kristi í
Emmaus, eftirmynd, máluð af Þórarni Þorlákssyni listmálara.
Dagana 21. og 22. júlí vísiteraði biskup Staðarhraunspresta-
kall, sem séra Óskar Finnbogason þjónar.
F}’rir nokkrum árum var svo komið um StáSarhrauns-
kirkju, að hún var ekki lengur messufær. Hnigu sóknarmenn
þess vegna að því ráði 1955 að steypa utan um kirkjuna, en
láta hana halda sér sem mest að innan. Ennfremur var
steypt við forkirkja og turn hækkaður, og kirkjan síðan máluð
smekklega utan og innan. Aðalforgöngu þessa máls hafði
Guðjón Þórarinsson bóndi í Lækjarbug, formaður sóknar-
nefndar. Bárust kirkjunni svo miklar gjafir, í vinnu og pen-
ingum, að hún skuldar nú ekki nema 35000 kr. Er þetta
myndarlegt átak af 35 manna söfnuði. Af gömlum munum
kirkjunnar má nefna stóra og þunga altarisstjaka og kopar-
hjálm. Henni var gefin síðastliðið ár altaristafla, mynd af
Kristi, er hann blessar ungbörnin, málaði frú Barbara Árna-
son.
Akrakirkja er timburkirkja, reist árið 1900, en nú mjög
hrörleg orðin. Hefir sóknamefnd fullan hug á því að endur-
bæta hana. En að líkindum er þörf nýbyggingar. Kirkjan á
allmargt muna og suma forna, m. a. Kristslíkan úr tré. Á
fimmtíu ára afmæli kirkjunnar var henni gefinn skírnar-
fontur, útskorinn af Bjarna Kjartanssyni, góður gripur.
Organleik við guðsþjónusturnar í Staðarhraunsprestakalli