Kirkjuritið - 01.12.1958, Qupperneq 44
474
KIRKJURITIÐ
Kolbeinssíaðakirkja er vönduð og fögur steinkirkja, reist
1933 af stórhug og myndarbrag, og söfnuðinum til mikils
sóma. Hún á margt góðra gripa, og eru ýmsir þeirra gjöf
frá burtfluttum Kolhreppingum og konum safnaðarins. Alt-
aristafla er máluð af Brynjólfi Þórðarsyni listmálara eftir
frummynd Carls Blocks: Kristur flytur Fjallræðuna. Tveir
rafljósahjálmar úr tré eru í kirkjunni, prýðilegir munir,
annar útskorinn af Bikarði Jónssyni, hinn er gjöf frá sóknar-
presti og frú hans. Kirkjan á silfurkaleik fornan með mynd-
skreyttri stétt, ágætan grip.
Vel æfðir kórar syngja í kirkjum prestakallsins, og hefir
sóknarprestur mjög annazt um söngstjórn.
Biskup visiteraði seinna sama dag Rauðamelskirkju, sem
er snotur timburkirkja með turni, byggð 1886. Skammt frá
henni og til mikillar prýði er trjálundur, sem hefir verið
gróðursettur i niðurlögðum grafreiti. Kvenfélagið Eyja í
Eyjahreppi hefir gefið kirkjunni altarisklæði, nýtt og gott.
Safnaðarfulltrúinn, Gestur Guðmundsson bóndi á Bauðamel,
hefir verið meðhjálpari kirkjunnar nær 40 ár.
Þegar samþykkt var á safnaðarfundi 1934 að flytja sókn-
arkirkju Miklaholtssóknar að Fáskrúðarbakka, kunnu ýmsir
þvi illa, að engin kirkja yrði í Miklaholti. Gjörðust því nokkr-
ir menn hvatamenn þess, að ný kirkja yrði reist í Miklaholti,
og lögðu til þess nægilegt fé. Var það gjört á árunum 1945
—46, kirkja vígð það ár og jafnframt afhent söfnuðinum
ásamt tveimur sjóðum til viðhalds henni. Kirkjan er úr stein-
steypu, ekki stór, en prýðilegt og vandað hús, með steyptum
brúnum og krossi á þaki. Altaristafla er mynd af brúðkaup-
inu í Kana, máluð af Kurt Zier kennara við Handíðaskólann
í Beykjavík. Hún er gjöf til kirkjunnar. Af öðrum gjöfum
má t. d. nefna stóran Ijósahjálm úr kopar, tólfarma, mjög
fagran.
Til þessarar vísitazíu kom héraðsprófasturinn, séra Sig-
urður Lárusson frá Stykkishólmi, og fylgdi hann biskupi síð-
an á allar kirkjur prófastsdæmisins.
Biskup gat ekki messað í FáskrúSarbakkakirkju, þar eð hún