Kirkjuritið - 01.12.1958, Blaðsíða 46
476
KIRKJURITIÐ
Safnaðarfulltrúi Helgafellssóknar hefir verið áratugum
saman með sæmd og prýði Guðbrandur Sigurðsson hrepps-
stjóri á Svelgsá.
Kirkjan á BreiSabólsstað á Skógarströnd er 83 ára gömul,
enda mjög hrörleg orðin. Þarf að reisa nýja kirkju í hennar
stað. En það er mikið átak fyrir fámenna sókn, um 60 manns.
Er mjög nauðsynlegt, að þegar sé tekið að safna loforðum
um gjafavinnu og fjárframlög til byggingar nýrrar kirkju.
Má treysta hið bezta til þess bæði söfnuðinum og sóknarprest-
inum, séra Sigurði M. Péturssyni.
Narfeyrarkirkja er nokkru yngri en Breiðabólsstaðar, en
þó einnig mjög hrörleg orðin. Hefir komið til tals að steypa
utan um hana, svo sem gjört hefir verið við ýmsar kirkjur
á síðari árum. Hún á í sjóði líkt og Breiðabólsstaðarkirkja,
um 10000 kr. Auk þess hefir verið stofnaður sérstakur sjóður
til minningar um Vigfús J. Hjaltalin, bónda í Brokey, og
skal verja honum til viðhalds og fegrunar Narfeyrarkirkju
og Narfeyrarkirkjugarði; nemur hann nú um 7500 kr. Sókn-
in er fámenn, en samtaka vilji er jafnan sigursæll.
I Bjarnarhöfn er bændakirkja. Lét Bæring Elisson bóndi
þar fyrir tuttugu árum fara fram mikla endurbót á kirkjunni,
þilja hana innan og gera hvelfingu yfir. Er hún nú í mjög
góðu standi. Altaristafla hennar er ein hin fegursta hér á
landi, mynd af Kristi og lærisveinunum í Emmaus, máluð
á tré, ef til vill frummynd eftir málarann fræga, Carl Bloch.
Altarisklæði er einnig einkar fagurt, gjöf frá frú Ingileifu
Melsted til minningar um mann hennar, Pál Melsted amt-
mann, sem er jarðsettur í Bjarnarhöfn.
Einn af niðjum hans, Páll Melsted heildsali í Beykjavík,
hefir heitið því að safan fé meðal ættmanna sinna og leggja
fram sjálfur til þess að koma upp mjög vandaðri steinsteypu-
girðingu um kirkjugarðinn. Ennfremur hefir Þorsteinn Sch.
Thorsteinsson lyfsali lofað fé í sama tilgangi og Haraldur
Sveinsson forstjóri Völundar. En þegar hefir verið safnað til
þessa fyrir forgöngu Bjarna Jónssonar bónda í Bjarnarhöfn
22000 kr.