Kirkjuritið - 01.12.1958, Page 48
478
KIRKJURITIÐ
fiskiðja í þorpinu liggur upp að henni. Er því brennandi áhugi
sóknarprestsins í Ólafsvíkurprestakalli, séra Magnúsar Guð-
mundssonar, og sóknarmanna á því að reisa sem fyrst nýja
kirkju á hagkvæmum stað. Og undirbúningur er þegar haf-
inn. Af þessum ástæðum hefir viðhald núverandi kirkju eðli-
lega orðið minna en ella á síðustu tímum. Prédikunarstóllinn
er gefinn kirkjunni 1710. Á hann eru málaðar myndir guð-
spjallamanna. Altaristaflan er máluð af Þórami Þorlákssyni,
eftirmynd. Kirkjunni hafa verið gefnir margir ágætir munir
og síðast við vísitazíuguðsþjónustuna tveir silfurstjakar og
Kristsmynd. Ágætur kór syngur í kirkjunni.
Að Ingjaldshóli stendur kirkjan hátt og á fögmm stað, stein-
kirkja með stöpli og turnspým, prýðilegt Guðs hús bæði utan
og innan. Stjömuhvelfing yfir allri kirkjunni. Hún er raf-
lýst og ágætlega búin ljósatækjum, þannig á hún nokkrar
ljósakrónur og 4 stjaka úr kopar, 2 alda gamla. Hökull er
mjög fagur og altarisklæði, hvort tveggja gjört af frú Unni
Ólafsdóttur.
Organleikari kirkjunnar, frú Jóhanna Vigfúsdóttir, hefir
undanfarna vetur haldið sunnudagaskóla á Hellissandi við
ágæta aðsókn.
Biskup vísiteraði 1. ágúst Brimilsvallakirkju, steinsteypu-
kirkju 35 ára gamla, mjög snoturt hús og í ágætri umhirðu.
Var þar fjölsóttust guðsþjónusta í yfirreið biskups miðað við
tölu sóknarmanna, nær 70 kirkjugestir, en í söfnuðinum alls
38 manns.
Vísitazía biskups var honum mjög ánægjuleg. Kirkjusókn
yfirleitt góð og undirbúningur presta og sóknarnefnda í
bezta lagi. Kom glöggt i ljós víða mikill áhugi á málum
kristni og kirkju, og má sjá af þessu yfirliti hug safnaðanna
á því að hlynna að kirkjum sínum, fegra þær og prýða og
gefa þeim góðar gjafir. Viðtökur þær, er biskup naut, vom
framúrskarandi góðar og ástúðlegar, svo að honum mun
ekki gleymast.