Kirkjuritið - 01.12.1962, Blaðsíða 5
KIRKJURITIÐ
435
Já, það er einmitt þetta, sem jólin eru. Þau eru auglýsing um
það, að Guð koin lil jarðarinnar, gekk undir kjör mannanna,
til þess að við fengjum hans kjör. Það er ekki nóg með það, að
Guð veiti mér fyrirgefningu. Þess vegna erum við Eva litla
nú þegar orðnir englar í augum Guðs. — Þetta skiljum við
ekki. Þessu verðum við bara að trúa. Og í þessari trú óskum
við livert öðru gleðilegra jóla.
Jólafriður
Jesús Kristur kom þú enn sem fyr,
kveiktu vitaljós viS mínar dyr,
svo ég megi sjá og skynja hér
sannleikann er líf þitt birtir mér.
Leiö þú mig um lífsins hála slig.
Lýstu blindum mér svo finni’ ég þig.
Eldinn tendra innst í minni sál
aö hann vermi hugsun, sjón og mál.
Jólastjarna, lýslu mína leiö,
Ijós viö þitt ég ganga vil mitt skeið.
Viö þinn geisla mun ég friöinn fá,
fylling lifsins sanna, jöröu á.
Guöjón F. Davíösson,
Fremstuhúsum, Dýrafirði