Kirkjuritið - 01.12.1962, Side 29
Gerðir Kirkjuþings 1962
(Frá skrifstofu biskups)
Þriðja kirkjuþing þjóðkirkju Islands var liáð í Reykjavík
20. okt. til 2. nóv. 1962 að báðum dögum meðtöldum. Þingið
hófst með guðsþjónustu í Neskirkju laugardaginn 20. okt. kl. 14.
Séra Þorgrímur Sigurðsson, Staðastað, flutti prédikun, en
kirkjukór Nesskirkju söng undir stjórn Jóns Isleifssonar. Við-
staddir voru forseti Islands, lierra Ásgeir Ásgeirsson, og kirkju-
málaráðherra, dr. Bjarni Benediktsson.
Að guðsþjónustu lokinni setti þingforseti, Sigurbjörn Einars-
son, biskup, þingið. Því næst var gengið í fundarsal Nesskirkju
og fyrsti fundur liafinn. Fyrsti varaforseti var kjörinn Hákon
Guðmundsson, annar varaforseti séra Friðrik A. Friðriksson.
Ritarar voru kjörnir séra Þorgrímur Sigurðsson og Þórður
Tómasson.
f fastanefndir þingsins var kosið sem hér segir:
T öggjafa rn efn d:
Hákon Guðmundsson, Þórarinn Þórarinsson, Jón Jónsson,
sera Sigurður Pálsson, Steingrímur Benediktsson, séra Jón Auð-
tnis, séra Þorsteinn B. Gíslason.
A llsherjarnefn d:
Séra Erlendur Sigmundsson, séra Friðrik A. Friðriksson, Jó-
Rann Jóhannsson, Jón Ólafsson, Þórður Tómasson, séra Þor-
grínuir Sigurðsson.
Aðalfidltrúi og varafulltrúi guðfræðideildar voru báðir for-