Kirkjuritið - 01.12.1962, Blaðsíða 49
INNLENDAR
F R É T T I R
Aðalfundur Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifli var haldinn á
Sauðárkróki 1. og 2. sept. s. 1. Fundurinn hófst kl. 4 e. h. laugardaginn 1.
sept, og sóttu hann 35 fulltrúar víðsvegar af Norðurlandi. Aðkomumenn
allir fengu gistingu á einkaheimilum á Sauðárkróki. Séra Sigurður Guð-
mundsson á Grenjaðarstað, ritari sambandsins, setti fundinn í forföllum for-
manns séra Péturs Sigurgeirssonar á Akureyri. Skipaði liann séra Þóri Step-
hensen á Sauðárkróki fundarstjóra og séra Sigurð Hauk á Hálsi ritara.
Síðan flutti hann skýrslu um störf stjórnarinnar. Hafa þau einkuin heinzt
að því að koma upp sumarbúðunum við Vestmannsvatn í Aðal-
dal. Er þar inikið í ráðizt, þvi að fé var ekkert til, þegar byrjað
var, en málið hefur alls staðar mætt skilningi og velvild og liefur
fjáröflun gengið vonum framar, þó mikið vanti enn. Var það eitt aðalmál
fundarins, hvernig fjár skyldi aflað til áframhaldandi framkvæmda, en að-
alhyggingin á staðnum er nú að verða fokheld. Sainhandið á kvikmyndina
Albert Schweitzer, sem verið er að sýna á Norðurlandi til ágóða fyrir sumar-
búðirnar og verður seinna sýnd víðar uin land. Einnig voru gefin út jólakort
og seld í sama tilgangi. Brýnust nauðsyn var þó talin að leita til ungling-
anna sjálfra í æskulýðsfélögum stiftisins, og fá þá til að fórna þessari hug-
sjón einhverju af starfi og vasapeningum sínum. Margt fleira kom fram í
þessu sambandi.
Æskulýðsfélögin í Hólastifti eru nú 8 talsins og átlu flest fulltrúa á fuiid-
inum. Einnig voru þarna hinir 4 bandarísku skiptanemar, sem hér dveljast
á vegum kirkjunnar. Voru þeir í fylgd séra Ólafs Skúlasonar æskulýðsfull-
trúa, sem að sjálfsögðu sat fundinn, flutti þar ávarp og lagði margt gott
til mála. Einnig voru þarna sem gestir fundarins séra Bragi Friðriksson
formaður Æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar og systir Laufey Olson frá
Winnipeg.
Er fundi Iauk á Iaugardag, gekkst Æskulýðsfélag Sauðárkrókskirkju fyrir
kirkjukvöldi í kirkjunni. Var efni þess helgað æskulýðsstarfinu. Séra Jón
Bjarman í Laufási flutti erindi, sem hann nefndi: Hvert stefnum við með
kirkjulegu æskulýðsstarfi? Bandarísku skiptanemarnir fluttu ávörp, sem
æskulýðsfulltrúi túlkaði, og Jónas Þórisson, ungur Akureyringur, nýkom-
inn frá Bandaríkjunum eftir ársdvöl þar í íiemendaskiptum, sagði frá dvöl
sinni vestra. Systir Laufey flutti einnig stutt ávarp. Þá var frásögn með lit-
skuggamyndum frá byggingu sumarbúðanna á s. 1. sumri og starfi skozk-
íslenzka vinnuhúðaflokksins, sem þar var. Þann þátt önnuðust þeir prest-
arnir á Hálsi og Grenjaðarstað. Kirkjukórinn á Sauðárkróki söng tvö lög
undir stjórn Eyþórs Stefánssonar og einnig var almennur söngur.
Sóknarpresturinn stjórnaði samkomunni, sem var öll hin ánægjulegasta,
og í lok hennar safnaðist liátt á 5. þúsund króna í frjálsuin samskotum til
sumarbúðanna. Einn hinna handarísku skiptanema, Poul Link að nafni,
lýsti því yfir í ávarpi sínu, að hann hefði lieimild frá æskulýðsfélagi heima-
safnaðar síns til að gefa 100 dollara til einhverrar kristilegrar æskulýðs-
starfsemi hérlendis gegn jafnmiklu framlagi frá einliverju æskulýðsfé-
lagi kirkjunnar hér. Sagðist hann nú vilja hjóða þessa upphæð sem gjöf