Kirkjuritið - 01.11.1963, Síða 32
414
KIItKJllIUTlD
lieimta liandritin lieim nú á vorum tímum. Að live miklu leyti
lærisveinar Grundtvigs liafa stutt íslenzkar sjálfstæðiskröfur
fyrr á tímum, er enn ekki rannsakað mál, en fróðir menn full-
yrða að skerfur danskra lýðliáskólamanna í þeirri grein sé ekki
Jítill.
Bók um œvi Grundtvigs var gefin út á íslenzku árið 1927 af
Islandsdeild Dansk-lslenzka félagsins, en hún er fyrir löngu
uppseld og þyrfti að semja aðra nýja um þennan merka mann.
Séra Hálfdán Helgason þýddi þessa bók, sem samin er af Holger
Begtrup. Allmikið verk væri að gera grein fyrir því hve miklu
meiri áhrif Grundtvigs eru nú en fyrir þrcm til fjórum áratug-
um. Nú ná þau bæði Ii 1 Japans og Afríku.
LýSháskólahugsjómin hefur ekki glatað gildi sínu á þeirri
rúmu öld, sem liðin er síðan höfundur hennar ruddi henni
braut. Að vísu þarf nú að bæta úr allt öðrum mannlegum þörf-
um en J)á þurfti. Hin almenna menntun náði á þeim tíma alll
of skammt út í þjóðlífið, nú nær hún miklu lengra. Það sein
fyrir liggur nú, er að bæta úr göllum og annmörkum ríkismenn-
ingar, sem tekin er að sýkjast alvarlega í sumum líffærum sín-
um.
VI. íslenzkir lý&háskólamenn
Spyrja má livers vegna skólahugsjónir Grundtvigs liafi hja
flestum Jijóðum fengið betri undirtektir og meiri stuðning en
hér lijá oss. íslendingar áttu sína lýðháskólamenn á sínum tínia,
og meðal þeirra voru suinir lielztu brautryðjendur ungmenna-
félaga hér á landi, svo sem Jieir Gu&mundur Hjaltason, Sigurð-
ur Þórólfsson, Stefóin Hannesson, Jakob Óskar Lárusson og ýins-
ir fleiri, sem ekki vinnst tími til upp að lelja. Nú hafa sumir
þeirra ritað bækur, en allgóða hugmynd um þessar hugsjónii'
má finna í fyrstu árgöngum tímaritsins „Skinfaxa“, sem UMFÍ
tók að gefa út frá 1909, enda var sjálf liugsjón lireyfirigarinnar
til íslands komin frá liinum norsku lýðháskólum. Guðmundur
Hjaltason var jiersónulegur vinur hins mikla norska lýðháskóla-
manns, Chr. Bruuns, en talið er að bók Brunns, „Folkelige
Grundtanker“ sé hin bezta hugsjónafræði lýðháskólanna, sem
út liefur komið.