Kirkjuritið - 01.11.1963, Page 34

Kirkjuritið - 01.11.1963, Page 34
KlltKJUUITlt) 416 okun, og vér höltlum fast við hana á sviði menntamála, t. d. í Ríkisútgáfu námsbóka, þótt erlendir sérfræðingar vari oss við afleiðingunum. Mér er enn í minni skólamálasérfræðingur frá Norðurlöndum, sem hélt á einni hinna ríkisútgefnu námsbóka og sagði: Þér skuluS vara ySur á þessu. Það skiptir máli að vér gerum oss Ijóst að vér erum ekki, eins og nú standa sakir, að reyna að gefa æskulýð Islands það, sem vér vitum sannast, fegurst, réttast og bezt í menningunni. Þessu til sönnunar nægir að fletta kennslubókum vorum og kennslubókum frændþjóðanna og gera einfaldan, skynsainleg- an og málefnalegan samanburð. Talsvert af menntameðölum vorum getur með engu móti talizt í fyrsta flokki, verulegur liluti fellnr í annan flokk og þriöja. Til samanburðar bendi eg á það, sem börn og unglingar frændþjóðanna eiga völ á af lesbókum, söngbókum og fróðleiksbókum við sitt hæfi á skóla- aldri. Eiga lýSháskólar erindi til vor? Áður en þeirri spurningu er svarað, skal tilraun gerð lil að gera grein fyrir kjarnanum í uppeldiskenningum Grnndtvigs, svo að menn geti gert sér grein fyrir gildi þess boðskapar, er liann flytur um uppeldismál. Hlutverk uppálandans, segir G., er aS vekja hina ungu til vitundar um verSmœti mannlegs lífs, gla>Sa meS þeim l'óngun til aS verSa góSur borgari í þjóSfélagi sínu. Til þess þarf hver einstaklingur að vakna til vitundar um ábyrgð á sínu eigm lífi, og með sama móti þarf að skapast lijá honum vitund a þeirri ábyrgð, sem liann ber á þjóðfélagi sínu. Til þess að vekja aðra til vitundar um þessa tvíþættu ábyrgð lientar bezt hið munnlegá orð mikilla mannvina og andans manna. Þessir menn eiga að flytja öðrum mönnum persónulegan, þróttmik- inn og ábyrgðarskapandi boðskap. Þennan boSskap nefnir G. liiS lifandi orS. Þetta liugtak, liið lifandi orð, notar hann ba’ði í guðfræði sinni og uppeldisfræði. Það er mi&lœgt hugtak í boð- skap lians. Þegar um er að ræða lífsins binztu rök, getur maðurinn ekki skilið annað en það, sem Jiann elskar. Kærleikurinn er grund- völlur undir skilningi og réttu mati á verðmætum. Þegar lnn mestu vandamál bíða mannsins á vegferð lians, þá er það ekki A

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.