Kirkjuritið - 01.11.1963, Page 38

Kirkjuritið - 01.11.1963, Page 38
K I K K J li R I T I í) 420 1 vorri eifún menningu eru mörg andleg verðmæti, sem af- rækst liafa sökum vélvæðingar vorrar eigin menningar í útvarpi og blöðum, og mjög þróttmikillar innþrengingar erlendrar menningar gegnum kvikmyndir, sjónvarp, bæknr og blöð. Frá þjóðræknislegu sjónarmiði yrði því lýðháskóli mikils virði fyrir oss. Hvaða gagn mundi kirkjulegur lýSháskóli í Skálholti gcra? Það liggur í eðli málsins að við slíkan skóla yrði að nota kirkju- leg menntameSöl; skólinn yrði í öllurn greinum að vera sam- boðinn kristinni kirkju. Að öðrum kosti yrði kák úr öllu sam- an og skólinn eins og kölkuð gröf. En svo framarlega sem skól- inn verður sannarlega kirkjulegur lýðháskóli, þá getur hann veitl nýjum menningarstraumum inn í þjóðlíf vort, kennt þjóð- inni að þekkja sjálfa sig, kennt nemendum sínum margt verð- mætt og gott, sem engin heilbrigð þjóð má án vera, þar á með- al ýmsar sócialfræðilegar greinar, siðfræði, bugsjónasögu, fjöl- skyklufræði, díakóníu eða kirkjulega þjónustu leikmanna í söfnuðunum. Skólinn gæti þjálfað nemendur sína og kallað þá til að bjálpa þeim, sem bágt eiga, til að hjálpa liinum særða manni við veginn, eins og hann er að finna í þjóðfélagi voru, bvort sem bann er ungur eða gamall. Þeim mun meiri nauðsyn ber ti! að snúa sér að þessum verkefnum sem oss hefur með öllu skort marga ágæta skóla, er frændþjóðir vorar bafa lengi átt, svo sem sócíalskóla, djáknaskóla, biblíuskóla og skyldar mennta- stofnanir. Markmið skyldi sett liátt og vel vandað til mannvals í allar stöður, svo að auðið væri að gefa nemendum bið bezta, sem menning vor befur upp á að bjóða. Þar með yrði að vísu engin sérinenntun veitt, en grundvöllur lagður með því að vekja vilja manna til kærleika og góðra verka. <J, að einhver máttur gerði oss fær uni að' sjá oss ineð augum annarra. I’uð mundi forða oss frá ntargri skyssu. -- Robert Burns. Hverjum nianni gefst tvenns konar uppeldi: af hendi annarra og af cigu' hálfu .... og er liið síðarnefnda niiklu mikilsverðara. - Jean Paul.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.