Kirkjuritið - 01.11.1963, Qupperneq 40

Kirkjuritið - 01.11.1963, Qupperneq 40
Pétur SigurSsson: Er guðstrúin úrelt Ymsum kann að þykja þetta kynleg og óviðkunnanleg spurn- ing, en ekki er liún ástæðulaus. Iðulega lesum við eitt og ann- að bæði í innlendu og erlendu ritmáli, sem bendir til þess, að allvíða sé uppi sá hugsunarháttur, sem telur guðstrúna úrelta. Hvers vegna skyldi hún vera orðin úrelt? Vegna þess, segir efnisliyggjumaðurinn, að livorki raunvísindi né geimrannsókn- ir geta fundið þenna Guð né verustað hans. Þetta á svo að sanna, að Guð sé ekki til. Postuli Krists segir að Guð sé „órannsakanlegur“ og húi Ijósi, sem enginn maður liafi séð né geti séð“. Ef þetta er rett, er ekki að búast við að rannsakandi efnishyggjnmaður nútím- ans geti komið auga á Guð í sjónauka sínum. En hvaðan fékk postulinn þessa vizku um Guð, að hann sé órannsakanlegur og búi í Ijósi, sem enginn maður liafi séð né gcti séð, spyr efa- semdamaðurinn. Er það ófullnægjandi svar, að andi hins órann- sakanlega Guðs hafi opinberað postulanum þenna mikla leynd- ardóm ? En prófum nú dæmið með barnslegri reikningsaðferð og spyrjum: Hver liefur tilgangur guðstrúarinnar verið? Er tih gangurinn úreltur? Er guðstrúar ekki framar þörf? Hvers vegna varð guðshugmynd mannanna til? Hvers vegna kom manninum til hugar að taka trú á ein- livern Guð og liugsa sér þenna Guð algóðan, alvísan, alniatt- ugan, alréttlátan — alfullkominn? Og svo bjó hinn liugsandi mannvera sér til vissa guð/rmð/ og höfuð inntak hennar er það) að manninum beri að líkjast Guði. Má inannkynið við því að sleppa þessari stórglæsilegu trú og hugsjón? Getur liún nokkru sinni orðið úrelt? Er hún ekki einmitt hið óbrigðula bjargráð lieimsins, þar sem margir men»

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.