Kirkjuritið - 01.04.1964, Síða 14

Kirkjuritið - 01.04.1964, Síða 14
156 KIRKJURITIÐ Nú þykknar í síra Hallgrími, honum vex ásmegin, og svarar Júð- um og Pílatusi sjálfur með þrumandi hyllingareiði: Víst ertu Jesú, Kongur klár, Kongur djrðar um eilíf ár, Kongur englanna, kongur vor, Kongur almættis tignarstór. Kong minn, Jesú, jeg kalla þig Kalla þú þrcel þinn aftur mig, Herratign enga að heimsins sið, Held jeg þar megi jafnast við. Síra Hallgrímur var einskis manns þræll, en hann kann að koma orðum að lotningu sinni og tilbeiðslu. Jesú hafa á öllum tímum verið valin hin hæstu heiti, og aldrei þótt nógu langt til jafnað. Jeg læt tilvitnunum lokið, og hverjum bezt að lesa fyrir sig, án milligöngu. Það er með fádæmum hve skýrt og skilmerkilega þriggja alda sálmar tala beint til vor, og hitta í hjartastað. Jeg dreg þó ekki dul á, að til eru þau vers og vísuorð í Passíusálmunum, sem jeg mundi strika yfir, einkum í sambandi við eilífa fordæm- ing, en það er færra en margur myndi ætla. Þá leggjum vjer og nýjan skilning, og þó skildan, í sumt, en svo er jafnan títt um alla forna Ritning og Játning. Engar tvær kynslóðir hugsa nákvæmlega eins. Passíusálmarnir eru vort fimmta og þjóðlega guðspjall, af því að skáldskapur þeirra er sannur. Skáldskapur er sannur, ef hann er í samræmi við hin hinztu rök. Það gildir hið sama um skáldskap, trú og vísindi. Það eru engar mótsagnir í tilverunni, þegar komið er að hinum innsta kjarna. En sú leið er vandrötuð. Vjer þurfum að velja oss leiðsögu, oftar máske en vjer gerum oss grein fyrir. Það er skammt á milli skálds- ins og spámannsins, ef báðir eru á rjettri leið. Þeir skynja og skila betur, hafa heitari tilfinning og eru næmari á fegurð en hversdags- maðurinn. Vjer þörfnumst margra meðalgangara, og síra Hall- grímur er einn þeirra fremstu.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.